143. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2014.

frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.

616. mál
[22:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp í afar stutta ræðu til að útskýra þátt sem ég hélt að mundi ekki valda misskilningi en eftir að ég hlustaði á ræður hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar áttaði ég mig á því að ég þyrfti kannski að leiðrétta einn hlut. Ég las það ekki þannig í áliti minni hlutans að þar væru einhverjar athugasemdir við framkvæmdina á fundi umhverfis- og samgöngunefndar en mér skilst að það sé að finna í uppprentun, sem ég hef reyndar ekki undir höndum.

Það er alveg rétt sem hefur komið fram að ég stöðvaði fund þegar sérfræðingar og aðilar frá SA og ASÍ voru þar og sleit fundi. Það var af ástæðu. Í upphafi fundar sagði ég að okkur yrði naumt skammtaður tíminn og er allt í lagi að upplýsa það. Það er mjög mikilvægt að þetta mál klárist núna fyrir miðnætti. Ég held að menn sem stóðu í sambærilegri lagasetningu hér fyrir fjórum árum geri sér fyllilega grein fyrir því að það þarf að vinna hratt. Það er mitt mat.

Ég nefndi að hver aðili fengi 30 mínútur og þótt það væri eitthvað sem stæði út af borðinu, hvort sem það væru svör eða spurningar, yrði ekki haldið áfram og ég mundi slíta hverjum dagskrárlið eftir nákvæmlega 30 mínútur. Hv. þm. Árni Þór Sigurðsson nefndi það hér að eins og hann upplifði þetta hefði ekki verið gætt jafnræðis milli aðila. Fulls jafnréttis var gætt á milli deiluaðila, þeir fengu nákvæmlega jafn langan tíma á fundi nefndarinnar. Það er mjög mikilvægt að það komi fram vegna þess að flugvirkjar höfðu áhyggjur af því að hinn samningsaðilinn fengi hugsanlega lengri tíma til að tjá sig. Ég spurði þá ítrekað áður en við kláruðum fundartíma þeirra hvort það væri eitthvað sem stæði út af borðinu og mér skildist að svo væri ekki.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég taldi mjög mikilvægt, þrátt fyrir að það stæðu einhverjar spurningar út af borðinu, að slíta fundi nefndarinnar. Ég árétta að jafnræðis milli aðila var gætt í hvívetna. Þetta skiptir miklu máli, virðulegi forseti, það er ekki létt verk að koma hér og setja lög á verkföll, alls ekki. Okkur hefur þó lánast að hafa fullt samráð um þá aðila sem koma fyrir nefndina og við gefum okkur þó lengri tíma en var gert fyrir fjórum árum. Við fáum fleiri aðila inn á fund nefndarinnar en var fyrir fjórum árum.

Ég skil vel að fulltrúum minni hlutans finnist þetta ósanngjarnt en þetta er útskýringin. Ég vona að menn virði hana.