varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar, Helga Hjörvar, um að 5. þm. Norðvest., Guðbjartur Hannesson, geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Ólína Þorvarðardóttir. Ólína hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.
Borist hefur bréf frá starfandi þingflokksformanni Bjartrar framtíðar um að hv. 6. þm. Reykv. s., Róbert Marshall, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Brynhildur Björnsdóttir. Brynhildur hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.