144. löggjafarþing — 2. fundur,  10. sept. 2014.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:40]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og dómsmálaráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 2. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvest., Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvest., í annarri og Kristján L. Möller, 7. þm. Norðaust., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Steinunn Þóra Árnadóttir, 8. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðaust.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þm. Suðvest., í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson, 7. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvest., í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Brynhildur S. Björnsdóttir, 6. þm. Reykv. s.

Fyrir Pírata tala Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykv. s., í fyrstu umferð, Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n., í annarri umferð og Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvest., í þriðju.