stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Á þessum haustdögum erum við enn minnt á þá ógnarkrafta náttúrunnar sem í senn skelfa okkur og heilla. Gagnvart þeim öflum stöndum við sameinuð á hverju sem dynur og erum þakklát þeim fjölmörgu sem gæta öryggis okkar og sinna rannsóknum við eldstöðvarnar.
Forsætisráðherra rakti hér áðan ágætan efnahagslegan árangur þjóðarinnar í ýmsu undanfarin ár. Það er rétt að nú er orðið enn ljósara en áður hversu góðu búi núverandi ríkisstjórn tók við. Við njótum í senn þess aðhalds sem skapað var af fyrri ríkisstjórn og hagstæðra ytri skilyrða. Það er mikilvægt að muna að þetta er hefðbundið góðæri, byggt á ófyrirséðum tekjum af ferðaþjónustu og sjávarafla og góðæri geta tekið skjótan endi. Þá skiptir sköpum að búa í haginn og styrkja heilbrigði, menntun og nýsköpun því höft og efnahagsleg einangrun geta að öðrum kosti hæglega leitt til þess að allur ávinningurinn fuðri upp í nýrri bólu. Því miður hyggst ríkisstjórnin ekki fara þá leið.
Við kynntumst því í fyrra að það er ákveðin verkaskipting í gangi hjá þessari ríkisstjórn. Hæstv. forsætisráðherra sér um að halda fallegar ræður sem vel hljóma eins og þá sem nú var flutt. En sannleikurinn um stjórnarstefnuna birtist síðan í fjárlagafrumvarpinu og þar kveður að venju við annan tón. Allt svigrúm í ríkisrekstri er sem fyrr nýtt í þágu þeirra sem best standa. Ríkisstjórn ríka fólksins barðist á hæl og hnakka síðasta vetur við að létta sanngjörnum veiðigjöldum af stórútgerðinni sem þó skilar metafkomu. Skattbyrði hefur skipulega verið flutt af tekjuhæstu einstaklingunum yfir á meðaltekjufólk og lágtekjufólk. Nefskattar, hverju nafni sem þeir nefnast, hafa verið hækkaðir þar sem lífeyrisþegar, launafólk og auðmenn borga jafnt.
Ríkisstjórn ríka fólksins felldi breytingartillögu mína hér í vor um að 5% ríkustu Íslendinganna yrðu undanþegnir skuldaleiðréttingunni. Þess vegna, hæstv. forsætisráðherra, sögðum við nei, vegna þess að leiðréttingin er svo röng leið að hún hjálpar ekkert þeim sem mest þurfa á að halda, skilur skuldavanda eftir óleystan og eys fé úr tómum ríkissjóði til fólks sem einungis þekkir skuldavanda af afspurn.
Í fjárlagafrumvarpinu er fundið upp á því nýmæli að hækka hollan mat en gera óhollustu ódýrari. Tekjur af nýjum álögum á hollan mat og menningu eiga að fara til að lækka vörugjöld á flatskjái og klósett. Á móti eiga barnabætur að hækka lítillega, en ríkisstjórnin lækkaði þær í fyrra og boðuð hækkun dugar ekki einu sinni til að vega upp þá lækkun. Þannig munu jafnt barnafjölskyldur og barnlaust launafólk bera þessa hækkun óbætta. Samt kiknar Framsóknarflokkurinn í hnjánum og virðist ætla að beygja sig í duftið og tryggja að matarskatturinn nái fram að ganga.
Samfylkingin styður afnám vörugjalda, en það er engin ástæða til að leggja álögur á lífsnauðsynjar til að fjármagna þá tilfærslu. Um það getur aldrei orðið sátt eða friður. Matur er dýrari hér en víðast hvar annars staðar og það getur ekki verið forgangsverkefni að hækka matarverð enn frekar. Við munum ekki styðja þessa hækkun skatts á mat og menningu.
Við verðum að verja Ísland sem gott samfélag. Sumt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar vegur að undirstöðum þess. Látið er sem fé sé aukið til framhaldsskóla, en í raun er það tekið út um leið með lækkun nemendaígilda svo að að minnsta kosti sumir skólar koma út í milljónatapi.
Almenningur á að bera meiri kostnað af lyfjum á næsta ári. Það kemur til viðbótar 20% hækkun komugjalda á yfirstandandi ári og ekki nóg með það. Fólk sem lagt er inn á spítala mun þurfa að bera kostnað af lífsnauðsynlegum lyfjum sem það fær á sjúkrahúsinu. Það hefur ekki gerst á Íslandi frá því að jafnaðarmenn komu á alþýðutryggingum árið 1935. Það þarf að fara aftur til upphafs kreppunnar miklu til að finna hliðstæðu við velferðarstefnu þessarar ríkisstjórnar.
Þegar tekist var á um alþýðutryggingar hér í þessum sal í desembermánuði 1935 lýsti Héðinn Valdimarsson velferðaráherslum jafnaðarmanna með þessum orðum, með leyfi forseta:
„Hver einstaklingur á ekki að borga nákvæmlega það, sem fyrir hann kemur, heldur á þetta að dreifast út yfir allan fjöldann, án þess að vitað sé, á hvern sjúkdómarnir koma, og þeir sem mestar hafa tekjurnar, hafa betri aðstæður til að greiða fyrir hina, sem verr eru settir. Það má líka taka það með í reikninginn, að þó að maður sé einu sinni vel efnaður, þá getur á skömmum tíma skipast veður í lofti og hann orðið fátækur.“
Við vitum öll að þetta er sannleikurinn um tilveru okkar. Andspænis náttúruöflum erum við öll jöfn og þannig er það í lífinu í raun. Auðurinn er hverfull. Í stjórnartíð okkar jafnaðarmanna tókst samstillt átak þjóðarinnar til að tryggja atvinnu og ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Á sama tíma var velferðin varin við erfiðar aðstæður, framlög til úrræða fyrir atvinnuleitendur aukin, hjúkrunarheimili byggð, fjölgað í skólum, framlög til byggðamála og nýsköpunar aukin. Við skárum mest niður í yfirstjórn og minnst í þjónustu við fólk.
Það er hægt að halda áfram uppbyggingu á þessari braut. Nú boðar forsætisráðherra góðæri. Af hverju er þá gerð krafa um áframhaldandi niðurskurð á velferðarþjónustu? Af hverju gengur hann ekki á undan með góðu fordæmi? Af hverju hækkar hann framlög til sjálfs sín og yfirstjórnarinnar, bætir við sendiherrum sem engin þörf er fyrir, og aðstoðarmönnum ráðherra svo að segja í mánuði hverjum svo við höfum ekki tölu lengur á hversu margir þeir eru orðnir, en krefst þess síðan af öllum öðrum að spara?
Það er eðlilegt að spyrja: Fyrst við þurftum ekki að leggja gjöld á lyfjanotkun á spítölum þegar glíman við hrunið var í algleymingi af hverju er þess þörf nú þegar afgangi hefur verið náð í ríkisrekstri? Hvers vegna — svo ég taki bara dæmi af handahófi af ferðum mínum um landið — þarf að draga saman þjónustu hjúkrunarfræðingsins á Vopnafirði í 60% starf og hjúkrunarfræðingsins á Borgarfirði eystri í 40% starf? Hver á að sinna þessum lífsnauðsynlegu störfum fyrir 40% laun? Hvers vegna er ekki haldið áfram með úrbætur á húsakosti Landspítalans? Til hvers lagði venjulegt fólk og starfsfólk í heilbrigðisþjónustu á sig mikla erfiðleika á samdráttartímum ef niðurskurðurinn á áfram að halda eftir að jafnvægi er náð í ríkisfjármálum? Eða er það kannski þannig að það er orðið sjálfstætt markmið ríkisstjórnarinnar að grafa undan opinberri velferðarþjónustu í landinu og veikja félagslega samstöðu?
Nú á að stytta tíma atvinnuleysisbóta og skera burt hvetjandi umhverfi fyrir atvinnuleitendur. Allar rannsóknir benda samt í sömu átt: Við búum við menntunarskort og fyrirtækin skortir sérhæft starfsfólk. Átak í þeim efnum mundi létta á atvinnuleysinu. Við opnuðum skólana í okkar stjórnartíð til að hækka menntunarstigið, fjölguðum í framhaldsskólum, starfsnámi og háskólum. Nú er snúið af þeirri leið. Metútskrift út Háskóla Íslands síðastliðið vor er engin tilviljun. Hún er afleiðing stjórnarstefnu sem hlúir að fólki og metur það að verðleikum. Fyrir liggja skýrslur um gríðarlegan árangur af auknum framlögum okkar á mestu erfiðleikatímunum til að styðja ungt fólk til náms og þjálfunar. Samt voru öll þessi þjóðþrifaverkefni slegin af í fyrrahaust.
Við verðum að gefa fólki tækifæri og það er ekkert til sem heitir of mörg tækifæri. Ef þér tekst ekki í dag þá búum við til nýtt tækifæri á morgun. Ef ekki tekst að nýta það, þá verðum við að búa til enn annað þann næsta dag. því eitt er ekki í boði: Að skilja fólk eftir.
Virðulegi forseti. Ég hef þegar óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi við fjármálaráðherra, formann Sjálfstæðisflokksins, um þann skort á stjórnfestu sem lýsir sér í viðbrögðum hans við þeim vanda sem mál innanríkisráðherra hefur skapað. Þegar ráðherra gerir alvarleg mistök og kemst seint og um síðir að þeirri niðurstöðu að hann geti ekki áfram verið ráðherra sumra þeirra málaflokka sem undir hann heyra hlýtur hin eðlilega lausn að vera að ráðherrann víki. En ekki hjá þessari ríkisstjórn. Hún kýs frekar að umturna stjórnkerfinu með ærnum kostnaði og formenn beggja stjórnarflokkanna atyrða umboðsmann Alþingis þegar hann sinnir lögbundnum skyldum sínum. Hér er á ferðinni slæmt fordæmi sem veikir stjórnkerfi okkar til frambúðar.
Það eru blikur á lofti. Fjölgun starfa er nær einvörðungu í þeim greinum þar sem menn eru að nýta sér þá staðreynd að Ísland er orðið láglaunaland. Fólk með sérmenntun er fast í atvinnuleysi og stefna ríkisstjórnarinnar felur í sér algjöra kyrrstöðu fyrir þetta fólk. Umsóknir um þau fáu störf sem bjóðast skipta hundruðum og fjöldi fólks sér enga framtíð í þessu landi. Og því mikilvægasta má ekki gleyma: Fyrir hrun vorum við með laun sem jöfnuðust á við það sem gerist í nágrannalöndunum. Nú erum við hálfdrættingar í launum. Alþjóðlegur samanburður sýnir að einstæðir foreldrar og barnafjölskyldur standa mjög illa í alþjóðlegum samanburði.
Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu gaf þjóðinni mikilvægt skjól til þess að fást við hrunið og það hefði verið skynsamlegt að halda áfram að vinna með Evrópuþjóðum að lausnum á gjaldeyrisvandamálinu. Við eigum samleið með Evrópuþjóðum jafnt í efnahags- og öryggismálum. Öllum þeim tækifærum sem aðildarumsóknin skapaði hefur ríkisstjórnin klúðrað. Hjá henni virðist enn sem fyrr skipta mestu að tryggja aðstöðu þeirra forréttindahópa sem að henni standa, þeirra sem vilja verja sig samkeppni erlendis frá og eiga kvótann sinn í friði um alla eilífð án endurgjalds og tryggja að Ísland verði áfram láglaunaland með hæstu vexti í Evrópu. Í málaskrá hennar er rakið að tillaga verði á þessu þingi lögð fram um að afturkalla aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. En hún heykist á því að segja okkur hvernig eða með hvaða hætti það muni verða gert, vegna þess að þjóðin gerði hana afturreka síðast þegar hún gerði tilraun til að leggja slíka tillögu fram. Það er mikilvægt að við stöndum saman um að hrinda á nýjan leik atlögu af þeim toga að sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar.
Góðir Íslendingar. Við getum nýtt svigrúm næstu ára til að styrkja fjölbreytt atvinnulíf og fjölga þekkingarstörfum sem skila háum launum. Við getum komist út úr vaxtaokri og efnahagslegri einangrun með samvinnu við aðrar þjóðir í Evrópu. Við getum gefið metnaðarfullum vaxandi fyrirtækjum trú á framtíð í þessu landi. Við getum gefið fólki fyrirheit um gott samfélag þar sem hlúð er að barnafjölskyldum og þar sem húsnæði er í boði á viðráðanlegum kjörum.
Ríkisstjórn ríka fólksins mun enn sem fyrr sjá um sína. Það verður æ ljósara. Verkefnið er að koma henni frá og knýja fram breytingu á stjórnarstefnu í þágu þjóðarinnar allrar. Við eigum það skilið. — Góðar stundir.