144. löggjafarþing — 2. fundur,  10. sept. 2014.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:56]
Horfa

Brynhildur S. Björnsdóttir (Bf):

Herra forseti. Góðir landsmenn. Nú þegar við erum hér saman komin í upphafi þings er ekki úr vegi að við veltum því aðeins fyrir okkur hvernig störf okkar birtast landsmönnum eða þeim sem okkur er ætlað að þjóna. Góður maður sagði nýlega við mig að honum fyndist ég hafa einfeldnislegt viðhorf til stjórnmála og raunar ætti það við um okkur öll í Bjartri framtíð. Við yrðum að horfast í augu við þann leik sem pólitík er og hefur alltaf verið og hvernig hann virkar. Þar giltu einfaldlega önnur viðmið en við þekkjum annars staðar í atvinnulífinu. Það skiptir mestu hver hrópaði hæst og væri bestur í að spinna fléttur og beita klækjum til að ná sínu fram. Þar viki auðmýkt fyrir staðfestu, skynsemi fyrir kreddum og samvinna fyrir egói. Þó að ég og þessi ágæti maður höfum ekki getað fallist á að vera sammála þá er það engu að síður mikilvægt umhugsunarefni að það sem fram fer hér á þingi skuli birtast landsmönnum svona.

Það er nefnilega ekki síður mikilvægt hvernig við vinnum hlutina heldur en hvað við gerum. Þjónustan sem okkur er ætlað að veita er vönduð forusta. Hún felur ekki í sér að við séum alltaf sammála eða átök komi ekki upp. Hún felur hins vegar í sér að við hlustum meira en við tölum, að við hlustum á landsmenn, hlustum hvert á annað, hlustum á sérfræðinga og rannsóknir og síðast en ekki síst á reynslu annarra þjóða og stofnana.

Árangur allra skipulagsheilda felst m.a. í þjónandi forustu en hinn hljóðláti eiginleiki slíkrar forustu er auðmýkt. Í því samhengi vakti það athygli mína í stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra hversu öfundsvert það er að búa á Íslandi, að við séum í efstu sætum heims hvað varðar nærri allt, jafnréttið, stöðu lýðræðis, réttindi ólíkra hópa, frelsi fjölmiðla, árangur af heilbrigðisstefnu og við erum jafnvel í áttunda sæti sem stöðugasta ríki heims.

Vissulega höfum við það gott í samanburði við mörg önnur ríki, en er þetta sá veruleiki sem blasir við okkur og þeim sem við þjónum? Erum við enn þá best í heimi? Var það ekki einmitt auðmýktin sem okkur skorti svo mikið þegar leikar stóðu sem hæst hérna á því herrans ári árið 2007? Auðmýkt er eiginleiki sem fæstir tengja við stjórnmál en engu að síður sýna rannsóknir að sá eiginleiki ræður hvað mestu þegar skapa skal traust og ná árangri. Auðmýkt snýst ekki um að láta ekki að sér kveða heldur hvernig maður gerir það. Hún snýst um sjá sjálfan sig og verk sín í réttu ljósi, leggja áherslu á afrek hópsins og ekki síst að geta verið berskjaldaður. Hinn berskjaldaði leiðtogi áttar sig nefnilega á styrknum sem felst í hlustun og að það sé mögulegt að hann eigi jafnvel eitthvað eftir ólært. Hann viðurkennir mistök sín, hann tekur ábyrgð á þeim og hann lærir af þeim. Þótt auðmýkt sé sannarlega ekki eini eiginleikinn sem skapar farsæla forustu þá gegnir hann lykilhlutverki í að skapa traust sem Alþingi þarf svo sárlega á að halda.

Ég óska hæstv. ríkisstjórn velfarnaðar í öllum þeim verkum og ákvörðunum sem fyrir henni liggja á komandi þingi og okkur þingmönnum sömuleiðis. Ég vona að við höfum öll hugrekki til að vera einlæg og auðmjúk á þessu þingi sem og á komandi þingum því að þannig sköpum við traust, það traust sem við þurfum til að geta þjónað landsmönnum vel og til að ná þeim árangri sem við vorum kosin til að ná. — Góðar stundir.