144. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2014.

lengd þingfundar og tilhögun fjárlagaumræðu.

[10:32]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Forseti vill láta þess getið að samkomulag er um það milli forseta og þingflokksformanna að þingfundir í dag og á morgun geti staðið þar til 1. umr. um fjárlagafrumvarp 2015 er lokið. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar sem verður bæði í dag og á morgun, föstudag. Í dag verður almenn umræða um fjárlagafrumvarpið í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra og á morgun, föstudag, munu umræður fara fram um málaflokka einstakra ráðherra.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur allt að 30 mínútur til framsögu nú í upphafi og talsmenn allra þingflokka hafa 15 mínútur hver. Aðrir þingmenn úr fjárlaganefnd hafa tíu mínútur hver og allir aðrir þingmenn hafa fimm mínútur hver.

Við ræðum ráðherra og talsmanna geta aðeins ráðherra og talsmenn veitt andsvör. Við ræðum annarra þingmanna úr fjárlaganefnd má veita andsvör. Við ræðum annarra þingmanna, þ.e. fimm mínútna ræðunum, má ekki veita andsvör.

Á morgun munu fagráðherrar taka þátt í umræðunni og í lok hennar mun fjármála- og efnahagsráðherra taka til máls. Nánara fyrirkomulag umræðunnar á morgun verður tilkynnt við upphaf umræðunnar þá.