fjárlög 2015.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við þekkjum það að oft hefur gengið illa að skila lækkunum út í verðlagið. Oftar en ekki skila hækkanir sér betur út í verðlagið. Er hv. þingmaður ekki uggandi um það að þessar lækkanir eða niðurfelling vörugjalda á þetta mörgum vöruflokkum eigi ekki eftir að skila sér sem skyldi til neytenda? Ég efast ekkert um að hækkun á matvæli mun skila sér út í verðlagið en ég er mjög efins um það að þessar niðurfellingar á vörugjöldum skili sér með sama hætti aftur til neytenda. Þetta er saga sem við þekkjum. Hvort sem við treystum kaupmönnum vel eða illa er þetta bara tilhneigingin. Svona virkar þetta.
Mig langar að heyra líka frá hv. þingmanni varðandi hækkun á virðisaukaskatti á rafmagn og heitt vatn. Nú tel ég okkur vera samherja í því að berjast fyrir lækkun á orkuverði á landsbyggðinni og veit að hv. þingmaður er að skoða ýmis mál í þeim efnum. Telur hann eðlilegt að haldið sé áfram að hækka orkukostnað fólks á köldum svæðum með þessum hætti án þess að því sé mætt með auknu framlagi til orkujöfnunar? Sér þess stað í núverandi frumvarpi að það sé verið að mæta þessari hækkun með einhverjum hætti aukalega?
Nú eru kjarasamningar lausir um næstu áramót. Telur hv. þingmaður að Bændasamtökin ættu að koma inn í þær viðræður með tillögur um að lækka frekar virðisaukaskatt á matvæli (Forseti hringir.) og auka þannig kaupmátt fólks?