144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[10:38]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Það er af mörgu að taka þegar horft er á fjárlagalið og fyrirætlanir þessa ráðuneytis. Það verður að segjast eins og er að það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin hefur snúið af þeirri öfugþróunarstefnu sem hún markaði í fyrra með niðurskurði á framlögum í samkeppnissjóði og þegar hún ákvað að láta ívilnanalögin renna út. Það er gott að sjá að ríkisstjórnin er að átta sig á því að mikilvægt er að styðja við fjölbreytt atvinnulíf í þessu landi þó að hún hafi ekki gert það í byrjun.

Batnandi manni er best að lifa.

Ég hef áhyggjur af nokkrum fjárlagaþáttum sem hér eru raktir. Hvað Samkeppniseftirlitið varðar á að fella niður bæði tímabundið framlag sem var veitt til að fylgjast með bönkum og því hvernig bankar færu með eignarhald á fyrirtækjum í óskyldum rekstri og sérstakt framlag sem var veitt í kjölfar bankahrunsins. Í staðinn á að veita fjármagn til þess að auka leiðbeiningarhlutverk Samkeppniseftirlitsins. Ég sé ekki annað en að með þessu sé verið að draga tennurnar úr Samkeppniseftirlitinu, það eigi að vera þægur seppi sem hjálpi fyrirtækjunum að brjóta ekki samkeppnislögin, en sjálfstæðar fjárheimildir sem Samkeppniseftirlitið hefur til þess að hafa eftirlit með sannanlega samkeppnishamlandi hegðun eru dregnar saman. Við vitum öll hvern skaða eignarhald banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri hefur skapað fyrir atvinnulíf í landinu. Við þekkjum öll þau fyrirtæki sem eru í bullandi samkeppni við fyrirtæki sem síðan eru undir handarjaðri eða verndarvæng banka og það er óþolandi að dregið sé úr rannsóknarheimildum Samkeppniseftirlitsins að þessu leyti.

Ég minni á það að hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gerði þetta að sérstöku umtalsefni í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra í fyrradag og talaði um að það væri mikilvægt verkefni að halda aftur af misnotkun banka og eignarhaldi í óskyldum rekstri.

Ég vil í annan stað rekja það sem hér er að finna um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Hæstv. ráðherra er náttúrlega búin að forklúðra því máli með alveg einstakri snilld. Hún kom fram með lúðrablæstri og söng fyrir einu og hálfu ári og sagði að það ætti að setja á ferðamannapassa. Það setti greinina alla í uppnám og hefur leitt til algjörs öngþveitis í gjaldtöku af ferðamannastöðum þar sem hver eigandi um annan þveran ryðst fram en síðan kemur hún aldrei með heildarfyrirkomulagið.

Nú á að draga úr fjárveitingum til endurbóta á innviðum fjölsóttra ferðamannastaða og það hlýtur að vera mikið undrunarefni öllum þeim sem hafa heimsótt fjölsótta ferðamannastaði í sumar og séð ástand þeirra.

Og að síðustu virðist ráðherrann ekki boða fráhvarf frá þeirri stefnu sinni þegar kemur að jöfnun raforkukostnaðar að hlífa stóriðjunni og öðrum stórnotendum við að leggja af mörkum til jöfnunar raforkukostnaðar. Frumvarp hennar strandaði hér í vor (Forseti hringir.) vegna þess að hún var einbeitt í þeim vilja sínum að hlífa stóriðjunni við eðlilegri þátttöku í jöfnun raforkukostnaðar. (Forseti hringir.) Við hljótum að kalla eftir því að það verði breyting á þeirri afstöðu ráðherrans.