144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[10:52]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni þessar fyrirspurnir. Varðandi þá hækkun á rafmagni til húshitunar sem fram kemur í virðisaukaskattsmálinu þar sem það er í neðra þrepi verður að skoða þetta allt í samhengi. Það er það sem er verið að gera og ég bendi mönnum á að lesa greinargerð fjármálaráðherra varðandi það mál þar sem allar fjölskyldugerðir, hvar sem þær eru á landinu, koma betur út úr þessum breytingum heldur en hitt.

Varðandi niðurgreiðslu húshitunar almennt er það sameiginlegt áhugamál okkar margra hér inni að gera þar úrbætur á. Það stendur ekki á mér í þeim efnum. Við erum að leggja í þann leiðangur. Við tókum þetta í tveimur skrefum ef svo mætti segja. Við byrjuðum á að jafna dreifinguna milli dreifbýlis og þéttbýlis. Það hefur ákveðin áhrif á niðurgreiðsluþörfina varðandi húshitun. Það lækkar niðurgreiðsluþörfina hjá þeim sem eru í dreifbýli vegna lækkunar raforkukostnaðar, en það hækkar vissulega hjá þeim sem kynda húsin sín með rafmagni í þéttbýli vegna þess að þar kemur örlítil hækkun. Þannig að við erum að skoða þetta í samhengi.

Eins og ég sagði áðan er stóriðjan ekki aðili að þessu máli. Hv. þingmaður spurði hvort það væri eitthvað lagalegt sem kæmi í veg fyrir það. Síðasta ríkisstjórn lagði orkuskatt á stóriðjuna en treysti sér ekki til að gera það varanlega heldur samdi við stóriðjuna um að leggja þann skatt á með þeim rökum að hér þyrftu menn að taka höndum saman og stóriðjan kemur inn í það. Sá skattur mun renna út og hann verður ekki lagður á aftur.

Eins og ég ítrekaði áðan erum við að jafna innan kerfisins. Stóriðjan er ekki aðili að dreifiveitunum. Þær eru ekki viðskiptavinir dreifiveitnanna. Ég mun því ekki styðja þannig breytingu að stóriðjan verði tekin inn vegna þess að það er óskylt mál.