144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[11:22]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Það er gott að vita, ég var einmitt að hvetja menn til að tjá sig um hvað þeim fyndist um Þingvelli. Nú höfum við skoðun hv. þingmanns.

Þingmaðurinn segir að ekkert hafi gerst í ferðamálum síðan (Gripið fram í: Plástrar.) ég tók við. Plástrar, já. Ég skal útskýra fyrir hv. þingmanni hvað við höfum verið að gera því við höfum ekki bara verið í gjaldtökumálunum. Varðandi skort á samráði, það að vera með 25 manna nefnd til ráðgjafar og samráðs …(ÖS: Seint og um síðir.)Nei, í öllu ferlinu, allan tímann í fyrra, allan fyrra vetur, allan tímann þannig að það er nú skorturinn. Ég held að þetta sé eins og með skattalækkanirnar, hv. þm. Össur Skarphéðinsson þekkir ekki samráð þegar hann sér það af því að hann hefur ekki notað það sjálfur.

Við erum búin að setja af stað vinnu við stefnumótun í ferðamálunum. Af hverju? Vegna þess að hún lá ekki fyrir. Þrátt fyrir að hv. þingmaður hafi borið ábyrgð á þessum málaflokki í eina tíð lá ekki fyrir almennileg stefnumótun. Við höfum komið því í gang. Við settum aukið fjármagn til rannsókna út af ferðaþjónustureikningum — sem hver skar niður? Æ, já, hæstv. síðasta ríkisstjórn skar niður.(Gripið fram í: Þú skarst niður. ) Nei. Af því að hv. þingmaður segir að hér hafi ekkert gerst þá er þetta akkúrat það sem við höfum verið að gera, við höfum verið að vinna að framtíðarstefnumótun í þessari grein sem er full nauðsyn á. Ég held að þingmaðurinn ætti að fagna því.

Varðandi sæstrenginn er það nú líka eitt sem hv. þingmaður hefði kannski betur gert þegar hann fór af stað með annað mál. Norski ráðherrann fyrrv. nefndi að það væru tvö ágreiningsmál í norsku samfélagi, Evrópumál og orkumál. Það hefði kannski verið betra fyrir hv. þingmann þegar hann lagði af stað í Evrópusambandsumsóknarleiðangurinn sinn (Forseti hringir.) að vera búinn að spyrja fólk, bæði þjóðina og þingið, hvað þeim fyndist um þetta, hvort hann hefði „backup“ í þetta, afsakið slettuna, (Forseti hringir.) herra forseti. (Gripið fram í.) Við förum ekki af stað í svo gríðarlegt verkefni (Forseti hringir.) sem sæstrengur er án þess að vera búin að rannsaka það í þaula. (Forseti hringir.) Það er í öruggu ferli.