fjárlög 2015.
Herra forseti. Það eru ein þrjú atriði sem ég vil inna hæstv. ráðherra eftir. Það fyrsta hefur nú þegar verið tekið upp, það eru fjárveitingar til Samkeppniseftirlitsins. Ég deili áhyggjum af því að ekki sé hyggilegt að draga til baka þær þó takmörkuðu aukningar sem voru settar inn á Samkeppniseftirlitið í áföngum 2012 og 2013. Þar var horfst í augu við að Samkeppniseftirlitið hafði búið við mjög þröngan kost og hafði kannski ekki verið tekið fullnægjandi tillit til þess mikilvæga hlutverks sem það hefur með höndum á tímum eins og þeim sem við höfum gengið í gegnum og stöndum enn frammi fyrir varðandi samkeppnisaðstæður í landinu. Má þar nefna bæði mikil ítök banka í fyrirtækjunum vegna skulda þeirra og sömuleiðis að gæta að því að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja bjagi ekki samkeppnisstöðu.
Ég tel það gagnrýni vert að draga til baka þessar fjárveitingar og finnst pínulítið vera að taka tennurnar úr Samkeppniseftirlitinu eins og áður hefur komið hér fram.
Varðandi Framkvæmdasjóð ferðamannastaða skulum við hafa nokkrar staðreyndir á hreinu. Á árinu 2013 voru settar 750 millj. kr. í viðbót í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og til uppbyggingar í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum — í viðbót við tekjur af gistináttagjaldi. Þetta eru staðreyndir. Svo kemur hæstv. ríkisstjórn hér í fyrrahaust og sker þetta allt niður við trog og vísar því inn í framtíðina og segir að það eigi að koma einhver ferðapassi eða eitthvað. Síðan hefur náttúrulega allt verið í upplausn í kringum það mál. Ríkisstjórnin horfist svo í augu við þennan vandræðagang sinn núna undir vor með því að setja aukafjárveitingu og byrja að útdeila þeim peningum án fjárheimilda, að segja má. Það segir að minnsta kosti formaður fjárlaganefndar.
Þetta er endemis klúður, en aðalatriðið er að þetta er svo alvarlegt mál vegna þess að þunginn á þessum stöðum er alltaf að aukast. Það er ekki þannig að ekki sé hægt að nýta þessa fjármuni vegna þess að á sumum stöðum sé enn verið að vinna skipulagsvinnu eða hönnunarvinnu. Það bíða önnur verkefni sem búin voru að fá úthlutun einu sinni og jafnvel tvisvar en fengu synjun í ár frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna þess að þar væru ekki til fjármunir. Þetta er bara staðreynd. Það er algjört hneyksli að mínu mati að koma svo með fjárlagafrumvarp þar sem ekkert nema tekjur af gistináttagjaldi eru í hendi í þetta verkefni.
Að lokum spyr ég hæstv. ráðherra um jöfnun á flutningskostnaði. Mér finnst það ansi rýrt að sú fjárhæð sé nú komin niður í 175 milljónir. Það var lagt af stað fyrir þremur árum með 200 milljónir þannig að á núgildandi verðlagi er þarna ráðstafað mun minni fjármunum í þetta bráðnauðsynlega verkefni sem vonandi er þó áfram samstaða um, að endurgreiða í einhverjum mæli flutningskostnaðinn af framleiðslustarfsemi á þeim svæðum sem fjærst liggja.
Þarna finnst mér líka heldur dauflega að verki staðið hjá hæstv. ríkisstjórn og lítill metnaður sýndur með því að láta þennan lið (Forseti hringir.) sérstaklega sæta niðurskurði.