144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[12:02]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Forseti vill geta þess að á blaði sem sent var út frá þinginu í gær til þingflokksformanna, og þingflokksformenn hafa örugglega deilt út til sinna þingmanna, er talað um seinni dag umræðu um frumvarp til fjárlaga. Þar er talað um fagráðherra. Forseta ber skylda til að kynna ráðherra eins og þeir hafa starfsheiti til og forsætis- og dómsmálaráðherra er kynntur af forseta vegna þess að hann gegnir þeim tveimur embættum.

Forseti vill líka geta þess að við erum að vinna hér út frá svipuðu formi og var í fyrra. Þar voru eingöngu viðræður við fagráðherra.