144. löggjafarþing — 4. fundur, 12. sept. 2014.
fjárlög 2015.
1. mál
Virðulegi forseti. Það væri einmitt mjög upplýsandi ef forsætisráðherra gæti svarað fyrir sinn málaflokk. Ef hann ætlar ekki að gera það hér og nú, hvenær ætlar hann þá að svara þessum spurningum fyrir þingheimi? Við eigum rétt á að fá upplýsingar um þessa málaflokka sem hæstv. forsætisráðherra hefur sópað undir sig þannig að ég er frekar gáttuð á þessu öllu saman. Ég sé ekki að þingsköpin eigi að standa í vegi hér.