144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[12:16]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur, það er full ástæða til að ræða þetta á fundi forsætisnefndar. Ég vek líka athygli á því að þingflokkar hafa lagt formlega fram beiðni um að forsætisráðherra sé hér, þannig að það leiki enginn vafi þar á, og að hann svari spurningum. Hann hefur sópað fullt af málaflokkum undir forsætisráðuneytið og maður veltir því þá fyrir sér: Er stjórnkerfið orðið þannig að ef hann sópar fleiri og fleiri málaflokkum undir forsætisráðuneytið lúti þeir ekki eftirliti, að þá séu þeir komnir í stikk, menn séu komnir í stikk með því að moka öllu undir forsætisráðherra? Það getur auðvitað ekki verið þannig, það hljóta að gilda einhverjar meginreglur.

Svo er það líka þannig að forsætisráðherrann styður ekki eigin fjárlög. Hann treystir á að stjórnarandstaðan lagi þau. Hann segir opinberlega að fjárlagafrumvarpið muni taka breytingum í meðförum þings og þá mögulega verði það þannig að hann geti stutt það. (Forseti hringir.) Það er auðvitað þannig að við verðum að fá að eiga orðastað við forsætisráðherra sem finnst í lagi að sitja í forsætisráðuneytinu en styðja ekki eigin fjárlög.