fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsögu hans. Ég ætla að halda áfram aðeins um lyfjakostnaðinn og þá kostnaðarþátttöku sjúklinga í honum. Mér finnst það vera mjög uggvænleg og röng þróun sem er að eiga sér stað með kostnaðarþátttöku lyfja. Ég mundi vilja sjá þetta fara akkúrat í hina áttina að ríkið væri að taka meiri þátt í kostnaði vegna lyfja en ekki að auka álögur á sjúklinga.
Mig langar að velta fyrir mér S-merktu lyfjunum því að S-merktu lyfin eru ekki bara hvaða lyf sem er, menn nálgast ekki S-merkt lyf í hvaða apóteki sem er. Þetta eru lyf ætluð til sérhæfðrar meðferðar og notkun þeirra er háð mjög ströngum skilyrðum. Þau eru eftir því sem ég best veit eingöngu afgreidd í apótekum Landspítalans og í apótekinu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta eru þess vegna lyf sem eru í eðli sínu mjög nátengd sjúkrahúsunum þó svo að þau séu ekki alltaf í bókstaflegri merkingu tekin inn á spítölunum. Það er einmitt vegna þeirrar sérhæfðu meðferðar sem þau eru ætluð til sem mér finnst auðvelt að ímynda sér að þeir sem nota þau eigi jafnvel við alvarleg veikindi að stríða og að geta þeirra þar af leiðandi til tekjuöflunar sé mögulega skert. Til að nefna einhverja hópa sem nota þessi S-merktu lyf eru það krabbameinssjúklingar og fólk með MS taugasjúkdóminn, bara til að taka einhver dæmi.
Ég vil því í fyrsta lagi spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Liggur fyrir einhver greining á þeim hópi sem fær ávísað S-merktum lyfjum? Hverjir eru það? Hvað er þetta fjölmennur hópur og eru þetta öryrkjar eða ellilífeyrisþegar, eru það karlar, konur börn? Hvaða fólk er það sem er að taka S-merktu lyfin og eru sem sagt að fara þá að greiða meiri kostnað vegna þeirra?
Í öðru lagi: Á að búa til tvískipt kerfi, annars vegar þeirra sem taka S-merktu lyfin inn á sjúkrastofnun og hins vegar þeirra sem fá lyfin og taka þau inn á göngudeild eða í heimahúsum? Er þarna verið að kljúfa notendur S-merktu lyfjanna upp í tvo flokka?
Svo í þriðja lagi: Hver er fjárhæðin sem á að vera hámarkskostnaðarþátttaka fólks (Forseti hringir.) í þessu nýja greiðslukerfi vegna lyfjanna?