144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[13:09]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra þessi svör. Samkvæmt samtali sem ég átti við apótek í gær var mér tjáð að þar væri ekki hægt að fá afgreitt nein S-merkt lyf nema í einhverjum algjörum undantekningartilvikum en að hin almenna regla væri sú að S-merktu lyfin væru bara í apótekum spítalanna.

Gott og vel. Mig langar að tala aðeins líka um kostnaðinn í hinu almenna kerfi. Í skýrslu Sjúkratrygginga Íslands um lyfjakostnað fyrir árið 2013 kemur fram að kostnaður vegna apótekslyfja, þ.e. almennu lyfjanna, hafi lækkað um 7,8% eða rúmar 690 milljónir milli áranna 2012 og 2013. Lækkunin skýrist meðal annars með lækkun lyfjaverðs vegna tilkomu nýrra samheitalyfja, verðendurskoðunar lyfjagreiðslunefndar og tímabundinnar lækkunar á kostnaði með tilkomu nýja greiðsluþátttökukerfisins.

Í frétt í Morgunblaðinu, sem er dagsett 23. júní 2014, kemur fram hjá Katrínu Eydísi Hjörleifsdóttur, sviðsstjóra hjá Sjúkratryggingum Íslands, þar sem hún segir, með leyfi forseta:

„Nýju lyfjagreiðsluþátttökukerfi var ekki ætlað að lækka kostnað ríkisins vegna apótekslyfja.“

Ég vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort þetta hafi breyst. Hefur kostnaður ríkisins vegna lyfja í almenna greiðsluþátttökukerfinu hækkað (Forseti hringir.) eða er verið að hækka kostnaðarhlutdeild notenda lyfja til að lækka kostnað ríkisins vegna þeirra?