144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[13:38]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég skil það þannig að ekki sé raunverulegur vilji hjá ráðuneytinu eða hæstv. ráðherra að halda áfram með þetta módel. Ég hef fengið upplýsingar um að mikil ánægja sé með það þó að vissulega hafi menn deilt um það að ekki hafi nægt fjármagn fylgt þessum samningum. Það er ekkert óeðlilegt við það að starfsfólk horfi í það að málaflokknum sé þá betur fyrir komið beint undir ráðuneytinu ef það tryggir öruggari fjármuni til rekstursins.

Faglega séð hef ég fengið þær upplýsingar, og það hafa fleiri fengið, að mikil ánægja sé með hve mikil samlegðaráhrif eru af félagsþjónustunni og heilsugæslunni. Ég held að það sé mjög gott fyrir notendur þessarar þjónustu að hafa þessa stjórnun í nærumhverfinu. Reynslan hefur sýnt það í þessum reynslusveitarfélögum sem hafa haft þessa samninga. Það er því kannski ekkert undarlegt að lítið sveitarfélag eins og Vesturbyggð hafi gengið mjög ákveðið eftir því að fá að verða tilraunasveitarfélag og samnýta sína þjónustu með þessum hætti til að spara fyrir samfélagið og til að bæta þjónustuna við íbúana.

Ég vil því undirstrika það að ráðherra endurskoði hug sinn í þessu máli þar sem hann ætti nú að þekkja þetta manna best sem fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri. Ekki var hann ósáttur við þetta fyrirkomulag þá að ég best veit; og líka þetta að sameining heilbrigðisstofnana verði aldrei framkvæmd nema í góðri (Forseti hringir.) samvinnu við heimamenn.