144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[13:58]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Okkur öllum að óvörum, ólíkt því sem sagði á dagskrá þingsins, var hæstv. forsætisráðherra ekki hér til andsvara ásamt hæstv. dómsmálaráðherra fyrr á fundinum. Aðeins sá hluti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem er hæstv. dómsmálaráðherra var til svara en neitaði því alveg að hinn hlutinn, sem er hæstv. forsætisráðherra, væri hér til svara.

Þegar þessi staða var komin upp óskuðu fjórir þingflokkar á Alþingi Íslendinga eftir því að sá hluti hæstv. dómsmálaráðherra sem er hæstv. forsætisráðherra væri líka til svara við umræðu um fjárlög, þingmál nr. 1, helsta umfjöllunarefni þingsins.

Ég vil inna hæstv. forseta eftir því hvað líður því að hæstv. forsætisráðherra verði til svara við umræðuna.