144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[14:11]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra yfirferðina. Á þessu og næsta ári verða engar umbætur í almannatryggingum utan þeirra sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var búin að ákveða með lögum eða samningum. Einnig lá fyrir frumvarp um breytingar á almannatryggingakerfinu fyrir ellilífeyrisþega í ársbyrjun 2013. Um það mál var þverpólitísk samstaða, en þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við var ákveðið að nýta það útgjaldasvigrúm sem fyrri ríkisstjórn skapaði til að lækka veiðigjöld og nú auðlegðarskatt í stað þess að nýta það í þágu lífeyrisþega og annarra sem nauðsynlega þurfa á að halda.

Félagsmálaráðherra fór með almannatryggingarnar eins og fæðingarorlofið og húsnæðismálin. Byrjað var upp á nýtt og seinkað þeim mikilvægu umbótum sem efla velsæld almennings. Við skulum vona að þessi mál og umbæturnar verði einhvern tímann að veruleika.

Mig langar að spyrja ráðherra hvenær hún hyggist leggja fram frumvarp að breytingum á lífeyristryggingum. Ég er þá ekki að vísa í það frumvarp sem nú er á málaskrá og hefur ekkert með kjaramál lífeyrisþega að gera.

Varðandi húsnæðismálin er víða um land mikill skortur á húsnæði af réttri stærð og á viðunandi verði, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Í frumvarpinu er ekkert sem bendir til þess að ríkisstjórnin hafi metnað til að mæta þessum skorti, og hækkun á húsaleigubótum er ekki á dagskrá samkvæmt frumvarpinu. Gert er ráð fyrir að veitt verði lán til 125 félagslegra íbúða en 1.800 manns eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði í sjö stærstu sveitarfélögum landsins. Við í Samfylkingunni höfum haft mjög miklar áhyggjur af stöðu leigjenda í tengslum við skuldaafskriftir ríkisstjórnarinnar. Leigu- og búseturéttarfélög fengu engar afskriftir eins og fyrirhugaðar eru fyrir þá sem eiga eigið húsnæði. Af hverju hækka ekki húsaleigubætur? Ég spyr hæstv. ráðherra að því.

Í öðru lagi spyr ég hana hvernig eigi að mæta leigu- og búseturéttarfélögum sem fá ekki skuldaleiðréttingu vegna húsnæðisskulda eins og aðrir. Það var gefið í skyn í umræðum um skuldamálin að það yrði gert. Þess sér engan stað í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Hvað er að frétta (Forseti hringir.) af því máli?