144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[14:29]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Það er gert ráð fyrir, eins og kom fram hjá hv. þingmanni, 72 millj. kr. í fjárlagafrumvarpinu til að hækka tekjuviðmið uppbótar á lífeyri. Það þarf hins vegar, eftir að samþykkt Alþingis liggur fyrir, að reikna út nákvæmlega hversu mikið verður hægt að hækka viðmiðið fyrir þessa fjárhæð. Þess má vænta að það muni ekki bara hafa áhrif á þá sem hafa verið að fá þessar greiðslur núna heldur verði einhver fjölgun einstaklinga þegar við útvíkkum viðmiðið og við bætast þeir sem hafa ekki átt rétt á greiðslum.