144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[14:30]
Horfa

Elín Hirst (S):

Virðulegi forseti. Stóru tíðindin fyrir íslenska velferðarkerfið, sem svo mikill samhljómur er um að hafa sem sterkast og best, er að um þessar mundir er íslenska þjóðin byrjuð að greiða niður skuldir ríkissjóðs, sem mun þýða lækkun á hinni gríðarlegu vaxtabyrði sem þessum skuldum fylgir. Eins og margoft hefur komið fram greiðir ríkissjóður um 80 milljarða kr. í vexti á ári og gott er að hafa í huga í því sambandi að gert er ráð fyrir að heildarútgjöld ríkisins árið 2015 verði rúmir 600 milljarðar. Brátt skapast því aukið svigrúm til þess að verja peningum sem nú fara í að greiða kostnað af lánsfé til lánardrottna í uppbyggilega hluti í samfélagi okkar.

Með auknum stöðugleika munum við hafa sem betur fer meira bolmagn til að hækka framlög til lífeyrisþega eftir skerðingar fyrri ára í þeim miklu þrengingum sem samfélagið gekk í gegnum. Á þessari vegferð hefur verið byrjað og henni verður haldið áfram.

Það skiptir hvern einasta einstakling miklu máli að vera sjálfs sín megandi. Þeir sem eiga undir högg að sækja vegna aldurs eða örorku eiga að njóta verndar okkar hinna sem höfum heilsu og aldur til að afla þjóðinni tekna. Það finnst mér svo sjálfsagt að ekki þurfi einu sinni að ræða það. Við getum öll lent í slíkum sporum og fyrir okkur öllum liggur að verða eldri og geta í minna mæli en áður lagt hönd á plóg til að vinna og skapa tekjur.

Eitt langar mig þó sérstaklega til að nefna í þessu sambandi. Við sjáum fram á gríðarlega fjölgun í hópi eldri borgara á næstu árum og áratugum. Það verður því mjög brýnt að skoða, og ég veit að verið að ræða þau mál af fullri alvöru við hin ýmsu hagsmunasamtök, að hækka eftirlaunaaldur á Íslandi. Annars munum við ekki geta verndað þá sem eru í mestri þörf þegar fram líða stundir. Þessi umræða fer nú fram í nefnd sem hv. þm. Pétur Blöndal stýrir.

Almannatryggingakerfið er kerfi sem er í stöðugri þróun og vegna þess hve það er stór hluti af fjármálum ríkissjóðs er það mjög viðkvæmt fyrir því að sem best takist til á þeim vettvangi. Í stuttu máli sagt ganga hlutirnir vel í efnahagsmálum okkar Íslendinga. Svo framarlega sem við gætum stöðugs aðhalds og missum ekki hlutina frá okkur mun það koma sér vel fyrir þá sem erfiðara eiga með að framfleyta sér, þá sem eru eldri að (Forseti hringir.) árum, öryrkja, veika, sjúka, fatlaða o.s.frv. Ég sé fram á (Forseti hringir.) bjartari tíma fyrir íslenska velferðarkerfið og hlakka til að geta stuðlað að því að svo verði.