144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[14:42]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég held ekki að um neinn misskilning sé að ræða heldur heyrir það sem hv. þingmaður spyr um undir aðra ráðherra eða þá er verið að tala um önnur frumvörp. Ég var að reyna að segja í svari mínu hvað það er sem ég er að gera sem snýr að forsjárlausum foreldrum og hugsanlegri útfærslu þannig að betur sé hægt að koma til móts við þá. Þess vegna nefndi ég að það er að fara af stað vinna varðandi endurskoðun á fyrirkomulagi greiðslna sem við höfum hingað til kallað barnabætur. Við höfum horft til vinnu sem var unnin og skýrslu sem var lögð fram árið 2007 í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Ég veit að menn hafa verið að skoða það síðan þá.

Síðan er vinna sem snýr þá að breytingum á húsnæðisbótunum þar sem hugsunin er að reyna að koma betur til móts við þennan hóp. Ég held að þetta sé eitt af því sem þingið þarf að fara mjög vel yfir þegar kemur að umræðu um bandorminn.