fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Varðandi síðustu spurninguna get ég sagt: Já, ég hef talið rétt að við kæmum okkur upp í lögum um lífeyrissjóðina ákveðnu samtryggingarkerfi, svipað kannski og við sjáum fyrir hjá vátryggingafélögum varðandi innstæðutryggingar, að lífeyrissjóðirnir sjálfir í ljósi ágætrar stöðu sinnar sæju til þess að tryggja sína sjóði. Ef meiri örorkubyrði er að falla á einhvern einn sjóð tekur kerfið sjálft það frekar en að leitað sé til ríkissjóðs sem er töluvert skuldsettur eins og hv. þingmaður þekkir ágætlega.
Hvað varðar VIRK Starfsendurhæfingarsjóð tek ég undir að sú starfsemi sem hefur verið í sjóðnum hefur verið með ágætum. Það má kannski segja að það sé fyrst núna, eftir fjögur ár, sem við erum farin að sjá að starfsemi sjóðsins er farin að skila árangri fyrir einstaklingana. Ég skipaði starfshóp um það að reyna að komast að niðurstöðu í samræmi við bráðabirgðaákvæði laganna um það hvernig mætti endurskoða greiðslurnar. Það var mikil áhersla á það þegar ég var í velferðarnefnd á sínum tíma að það yrði ekki mikil sjóðsöfnun hjá VIRK. Það hefur reynst vera mjög mikil sjóðsöfnun. Þegar við berum til dæmis saman þær upphæðir sem hafa farið inn í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð og síðan þær upphæðir sem við setjum í Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er þetta ekkert ósvipað og ætti að vera árið 2015. Við vitum alveg hvernig staðan hefur verið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við náum niðurstöðu hvað það varðar og ég vona að starfshópurinn komist að ákveðinni niðurstöðu um breytingar á lögunum.
Ég hef aðeins þrjár sekúndur eftir núna þannig að það er kannski ágætt að ég komi að atvinnumálunum í síðara andsvari mínu.