fjárlög 2015.
Herra forseti. Ég ætla að halda mig við samgöngumálin tímans vegna þó að margt fleira væri áhugavert að ræða við hæstv. innanríkisráðherra.
Í fyrsta lagi samgöngur til Vestmannaeyja. Ég spyr ósköp einfaldlega: Hvernig á að lesa í þá munkalatínu sem er að finna í greinargerð frumvarpsins á bls. 362 þar sem segir:
„… lækkun á tímabundnu framlagi sem veitt var í fjárlögum 2014 til undirbúnings að frambúðarlausn í samgöngum til Vestmannaeyja sem gætu til skamms tíma falið í sér tilraunir með leigu á annars konar skipi en Herjólfi en einnig athuganir og hönnun í tengslum við hugsanlega smíði á nýrri ferju.“
„Hugsanlega smíði á nýrri ferju.“ Hvað þýðir þetta á mannamáli? Er ríkisstjórnin að undirbúa eða jafnvel þegar búin að ákveða að hætta við nýsmíði á Herjólfi?
Ég nefni sömuleiðis, eins og hv. síðasti ræðumaður, innanlandsflugið þar sem áfram er dregið úr styrkjum og reyndar mjög dregið úr áherslum á almenningssamgöngur almennt svo munar verulegum fjárhæðum. Er ríkisstjórnin að boða þarna nýja stefnu og hefur hæstv. innanríkisráðherra ekki áhyggjur af því að það reynist erfitt að gera hvort tveggja í senn, að halda úti ríkisstyrk á flugleiðunum og halda flugvöllunum opnum og viðunandi þjónustustigi á þeim, ef áfram verður dregið úr fjármunum í þjónustusamninginn við Isavia?
Það er fleira en vegamálin sem fá harkalega útreið. Hafnamálin eru skorin mjög harkalega niður. Það er kannski hlutfallslega einn mesti niðurskurðurinn. Þar eru 748 milljónir veittar úr ríkissjóði til framkvæmda á árinu 2015 en samkvæmt nokkurra mánaða samgönguáætlun sömu ríkisstjórnar, sama ráðherra, áttu 1.030 milljónir að fara úr ríkissjóði í hafnarframkvæmdir á næsta ári. Hafnabótasjóður til dæmis er tekinn niður um 105 milljónir. Halda menn að það komi ekki við þau verkefni sem hann á að standa á bak við?
Ef við tökum svo vegamálin er látið heita svo að aukið sé í nýframkvæmdafé um 850 milljónir en í hinu orðinu er talað um að kannski verði nú að nota það allt í viðhald því að það sé svo svelt. Og niðurstaðan er sú að í staðinn fyrir 23.308 milljónir sem þessi nokkurra mánaða samgönguáætlun gerði ráð fyrir í heildarfjárheimildir hjá Vegagerðinni verða það 20.700 milljónir. Ég fæ út úr því 2,6 milljarða niðurskurð bara samkvæmt algerlega einfaldri grunnskólastærðfræði. Ef ég bæti höfnunum og fluginu við þá er ég kominn í fulla 3 milljarða í niðurskurði á samgöngunum.
Þetta líst mér vægast sagt illa á og ég kaupi það ekki að það séu svo miklar þrengingar núna í ríkisfjármálum að við þurfum að fara aftur á bak frekar en áfram í þeim efnum. Það vita allir hvað þessi málaflokkur hefur í raun og veru verið hart keyrður og sveltur og allir hafa bundið vonir við að við færum að (Forseti hringir.) auka hér í um leið og betur áraði og það stóð til. Og eru það nýir tímar hjá ríkisstjórn, stjórnfesta, agi í ríkisfjármálum, (Forseti hringir.) að nokkurra mánaða samgönguáætlun sömu ríkisstjórnar er að engu höfð hér í fjárlagafrumvarpinu að hausti?