144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:16]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég þakka svörin. Mig langar aðeins að fara yfir í annað mál sem heyrir líka undir hæstv. ráðherra, það eru neytendamálin. Undir þeim kafla eru í raun bara tveir liðir. Það er Neytendastofa; fjárframlög til hennar lækka aðeins vegna þess að ákveðinn málaflokkur flyst yfir til Mannvirkjastofnunar. Talsmaður neytenda var lagður niður. Þeir peningar fóru ekkert annað, það voru 15 milljónir þar. Neytendasamtökin, þau lækka um 200 þús. kr., reiknast mér til, framlögin til Neytendasamtakanna, úr 8,3 í 8,1.

Nú á að fara í breytingar á virðisaukaskattskerfinu og það á að lækka um eitt prósentustig ef ég skil rétt eða eitt og hálft og það á að skila sér til neytenda. Mér er reyndar til efs að það muni gerast vegna þess að það er það lítil lækkun og ég er hrædd um að seljendur muni einfaldlega auka álagninguna. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um að þessu yrði fylgt eftir og ég sá það jafnvel fyrir mér að menn mundu fara í massíft eftirlit eins og þegar matvælaskatturinn var lækkaður á sínum tíma. Að því stóðu Neytendastofa, Neytendasamtökin og verðlagseftirlit ASÍ. Það er ekki verið að auka framlag í þennan málaflokk heldur er verið að draga saman í málaflokknum og ég velti því fyrir mér hvernig það komi heim og saman við það að lækka virðisaukaskatt og jafnframt að vera með eftirlit sem á að tryggja það að verðlækkunin skili sér til neytanda. Hver ætlar að tryggja það og með hvaða fjármagni? Ætlar einhver að fara í það ókeypis?