144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:11]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Varðandi það hvort veiðigjöld séu landsbyggðarskattur á það sér auðvitað þann uppruna að 80% eða meira af útgerðinni er á landsbyggðinni. Þar af leiðandi er skiptingin ansi ójöfn ef við förum síðan og berum saman höfðatölur. Það er því augljóst að sé miðað við hvern íbúa greiða íbúar landsbyggðarinnar umtalsvert meira af skatttekjum til ríkisins í gegnum þetta gjald.

Nú er þetta umræða um fjárlög. Hér er ágætisfyrirspurn frá hv. þingmanni sem ég get í sjálfu sér ekki svarað einn, tveir og þrír. Ég hvet þingmanninn til þess að senda inn skriflega fyrirspurn þannig að ráðuneytið (Gripið fram í: … búinn að því.) fái ráðrúm til þess að leita eftir þeim upplýsingum og koma þeim til þingsins, ég tel auðvitað afar mikilvægt að þingið sé upplýst, þar sem þingmenn óska eftir því. Ég get í sjálfu sér ekkert annað sagt en að þetta er byggt á skattframtölum með hefðbundnum hætti eins og hefur verið gert allan tímann. Lögin eru nokkuð skýr og þeim hefur verið framfylgt eftir því sem ég best veit án þess að nokkuð annað hafi komið upp.