144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:21]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég get sagt eins og maðurinn, að ég hef áhyggjur af mörgu, meðal annars því að þessi umræða sem á að snúast um fjármál fagráðuneyta sé farin að snúast um allt annað. Það getur svo sem verið ágætt að taka þá umræðu, en það er kannski spurning hvort við ættum að gera það á viðeigandi vettvangi.

Varðandi starfsemi Fiskistofu á Ísafirði þá er það einmitt dæmi um það hvernig okkur hefur gengið í flutningum starfa út á land þegar höfuðstöðvarnar eru hér á höfuðborgarsvæðinu og niðurskurður, ekki síst á síðasta kjörtímabili, mjög víða úti á landi. Í Skagafirði fækkaði opinberum störfum um tæplega 50 — 50 störf í ekki stærra byggðarlagi — sem er svakalega mikið. Þá virðist ekki nein þeirra hugmynda sem hv. þingmaður hefur talað um, að færa störf með skynsamlegum hætti út á land, hafa virkað. Hér er verið að nota aðrar aðferðir. Ég sagði: Þetta var stefnumarkandi áform til að skapa tækifæri til að eiga samstarf um flutninginn meðal annars við starfsfólk og yfirstjórn stofnunarinnar sem ég tel að gangi býsna vel og vona að endi vel.

Varðandi aðra þá þætti sem hv. þingmaður kom inn á get ég sagt að það er vissulega margt sem maður getur haft áhyggjur af varðandi niðurskurð innan landbúnaðarkerfisins eða stöðu hans. Ég tel að tækifæri séu til þess að þingið taki það til skoðunar. Ég get hvorki svarað fyrir menntamálaráðherra né fjármálaráðherra, hvaða áform þeir eru uppi með í ýmsum þeim málum. Ég er hér til að svara fyrir fagráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar og ráðuneyti byggðamála og get svo sannarlega gert það. En ég held að hér í þinginu séu tækifæri til þess að fjalla um þessi mál á faglegan hátt. Ef upp koma álitaefni sem menn telja að séu óskynsamleg á einu sviði eða öðru er þingið einmitt vettvangur til að leiðrétta það og koma þeim til betri vegar.