144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:30]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð. Það eru þó nokkur atriði sem mig langar til að ræða við hann, en þar sem ég hef stuttan tíma ætla ég að einbeita mér að einum málaflokki sem er ferðamál.

Mikið hefur verið um það rætt og ég held að það sé ekki um það deilt að við höfum áhyggjur af umhverfi og náttúru Íslands vegna gríðarlegrar fjölgunar ferðamanna á undanförnum árum. Við höfum glaðst yfir þessari fjölgun ferðamanna vegna þess að hún skilar okkur gríðarlegum gjaldeyristekjum. Ég hélt sannast sagna að sú ríkisstjórn sem nú situr væri sömu skoðunar og sú ríkisstjórn sem sat hér áður um að það þyrfti að setja töluverða fjármuni í uppbyggingu á ferðamannastöðum í fyrsta lagi og í öðru lagi í bætt aðgengi að nýjum ferðamannastöðum til að dreifa álaginu á þá sem fyrir eru.

Í fjárlagafrumvarpinu er töluverð lækkun á liðnum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, sem heyrir reyndar undir iðnaðarráðherra. Ég sé heldur ekkert sérstaklega um þetta í kafla umhverfisráðuneytisins. Þetta er stórmál, virðulegi forseti, vegna þess að það er eitt að halda áfram, eins og við höfum stutt, að markaðssetja Ísland á erlendri grundu en annað er að það þarf að fylgja því eftir með því að hafa trausta innviði, tryggja að við gætum að helsta aðdráttaraflinu sem er náttúra Íslands. Ég hefði haldið miðað við allt sem sagt hefur verið að það yrði gert, en það kemur svo sem ekki á óvart hvað þessa ríkisstjórn varðar að oft er eitthvað sagt en því er sjaldnast fylgt eftir eins og virðist vera í þessu tilfelli.

Ég vil því óska eftir því að ráðherrann fari yfir það með okkur hvernig menn ætli í fyrsta lagi að fylgja eftir þeirri fjölgun ferðamanna sem verið hefur. Við sjáum glæsilegar tölur um komu ferðamanna hingað til lands á þessu ári. Ég hugsa að þetta verði enn eitt metárið, það stefnir í það. Hvernig ætlum við að tryggja það að náttúra Íslands haldi sínum ljóma, ef svo má að orði komast, og haldi áfram að vera aðdráttarafl? Til þess þurfum við að leggja út fjármuni. Það kostar okkur fjármuni.

Við vorum lögð af stað í þetta verkefni. Mér sýnist þessi ríkisstjórn vera að draga í land með það. Ég vil fá að heyra það frá hæstv. ráðherra hvernig menn ætli að bregðast við þessu og hvers vegna þess sér ekki stað í fjárlagafrumvarpinu.