144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:51]
Horfa

Brynhildur S. Björnsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég þakka heiðarleg svör. Mig langar að lesa hér aðeins upp úr bls. 265 í þingskjalinu, með leyfi forseta, undir fyrirsögninni Græna hagkerfið og verkefni tengd vernd sögulegra og menningartengdra byggða og fornleifa o.fl.:

„Gert er ráð fyrir 133,6 millj. kr. fjárveitingu á þennan lið en það jafngildir 56,4 millj. kr. lækkun að raungildi frá gildandi fjárlögum.“

Það er gott að heyra að ákveðnir þættir séu enn þá í vinnslu. Það getur ekki annað en verið undarlegt að grænt hagkerfi, stórt verkefni — að þverpólitísk nefnd sem hefur unnið með vilja okkar allra held ég, og skilað jafn mörgum tillögum og vera ber, sé komin undir lið sem heitir Menningararfur og með lækkuðu fjármagni. Við hljótum að geta verið sammála um að það eru einhver skilaboð fólgin í því að þessi liður heyri í fyrsta lagi ekki undir umhverfisráðuneytið, sem það ætti klárlega að gera í mínum huga og örugglega fleiri, og hvernig hægt er að klessa honum undir einhvern menningararf — afsakið orðbragðið — hluti á borð við fornminjar og fleira sem allt á rétt á sér. Þetta er stærra vandamál en það. Þetta er undarleg nálgun.