fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég verð að byrja á því að leiðrétta hv. þingmann. Það var ekki fyrrum kollegi minn eða samflokksmaður sem áður hefur verið ráðherra sem vann á hraða snigilsins; hann gagnrýndi að ráðuneytið ynni á hraða snigilsins, svo það sé nú sagt, áður en viðkomandi varð ráðherra. Það getur vel verið að hann hafi komist á þann hraða eftir á, án þess að ég ætli að fullyrða nokkuð um það. Ég held reyndar að hann hafi verið sérstaklega afkastamikill landbúnaðarráðherra, sá ágæti maður, og vel liðinn.
Um að það hafi tekið tiltekinn tíma að skoða breytingu á málaflokkum þá var ég í andsvari áðan að svara því hvernig við værum að vinna að verklagi við flutning á ákveðinni stofnun. Ég var gagnrýndur harðlega fyrir það að þar hefði verið tekið allt of brött ákvörðun á allt of skömmum tíma þegar það snerist fyrst og fremst um að kynna áform til þess að fá m.a. starfsmennina að borðinu til að skipuleggja. Ég man ekki betur en að hér hafi staðið yfir samfelldar breytingar á Stjórnarráðinu og stofnunum þess í fjögur ár á síðastliðnu kjörtímabili þar sem hv. þingmaður var ráðherra. Ég veit ekki betur en að skýrslur sem ég hef verið að lesa hafi snúist um breytingar á þessu sama kerfi sem stóðu yfir — ef ekki áratugum skiptir þá í það minnsta árum saman, án þess að menn hafi tekið ákvarðanir.
Ég sagði að hér mundi fljótlega draga til tíðinda og ákvarðanir teknar, grundvallaðar á þeirri stefnu sem við erum að vinna að um einföldun og skilvirkni í stofnanastrúktúr ríkisins. Með því munum við fá meira fyrir minna eða sama fjármagn og getum síðan farið að auka í, á grunni þess að við séum komin með öflugri stofnanir, hvort sem það eru rannsóknarstofnanir, stjórnsýslustofnanir eða framkvæmdastofnanir. Þessi vinna er í (Forseti hringir.) fullum gangi og ég vænti þess að henni ljúki sem fyrst.