144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[18:22]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að það er erfitt að skera niður í þróunaraðstoð. Við erum hins vegar ekki að gera það. Í yfirliti yfir framlög til þróunarmála frá 2007–2015 í hlutfalli af skatttekjum eru það 0,24% árið 2007, síðan fer það í 0,37 2008, eins og ég sagði, niður í 0,35% 2009, 0,27% 2010, 2011 er það komið niður í 0,21% og má spyrja hv. þingmann hvernig hjartalag hann hefur haft þá. 2012 er það 0,22%, ég man ekki betur en hv. þingmaður hafi líka verið utanríkisráðherra það ár, 2013 erum við komin upp í 0,24%, sama og árið 2007, á yfirstandandi ári verður það 0,22% og lagt er til í þessu frumvarpi að það sé áfram 0,22% árið 2015.

Ég endurtek það sem ég sagði áðan: Það er mikilvægt að ná fram hallalausum fjárlögum og byggja fjárframlög okkar á því að við getum greitt þau. Til að halda sama hlutfalli af þjóðartekjum hækkum við framlögin á þessu ári um á þriðja hundrað milljónir kr. Sú hækkun kemur ekki fram á fjárlögum utanríkisráðuneytisins því að um er að ræða hækkun á stofnfjárframlögum til Alþjóðabankans. Eins og ég sagði jafnframt stefnir utanríkisráðherra að því að leggja fram nýja tillögu um framlög til þróunarsamvinnu næstu ára, um það hvernig við ætlum að vaxa á næstu árum, á heilbrigðum grunni þess að við eigum fyrir þeim fjármunum á þessu þingi.