fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Hér liggur til umræðu frumvarp til fjárlaga, sá kafli sem heyrir undir utanríkisráðuneytið. Hann er kannski ekki stærsti og útgjaldafrekasti liður fjárlaga, eins og áður hefur komið fram er hann innan við 2%, mér reiknast til að hann sé 1,78% af útgjaldalið fjárlaga að þessu sinni. Ég er kannski einn fárra þingmanna sem þora að lýsa því yfir að ég sé ekki eftir krónu til utanríkismála, þau útgjöld mættu gjarnan vera meiri. Það að lýsa því yfir að landið sé lítið og hafi ekki efni á því að stunda og reka sína utanríkisþjónustu er í raun mikil fórn, þ.e. að rækja ekki þann lið, vegna þess að utanríkisþjónusta og vel rækt utanríkisstefna er í raun tekjuöflun.
Mér dettur hér í hug að segja frá viðtali fyrir margt löngu við þáverandi flugmálastjóra. Þá töldu blaðamenn, eins og oft áður, að þeir þyrftu helst að greina frá því hvað ferðalög kostuðu, þeir höfðu mikla tilfinningu fyrir því, en skoðuðu ekki hverjar stóru tölurnar væru. Nokkrir blaðamenn kvörtuðu yfir því að þáverandi flugmálastjóri færi mikið til útlanda. Flugmálastjóri svaraði því til að í hverri einustu ferð til útlanda hefði hann aflað eins og góður togari.
Ég tel að íslensk utanríkisþjónusta geti aflað vel þannig að þau útgjöld sem þarna eru eru í raun komin að þolmörkum og ég er orðinn dálítið þreyttur á því að endalaust sé talað um aðhald og forgangsröðun verkefna. Það er endalaust hægt að ganga hart fram og ég tel jafnvel að utanríkisþjónusta Íslands sé komin að þolmörkum. Við rekum 22 sendiskrifstofur og samkvæmt þeim gögnum sem ég hef er það með því minnsta sem gerist meðal frjálsra þjóða. Mér dettur í hug að eitt Evrópuland, nýfrjálst Evrópuland, virðist nú líta á það sem sinn status að reka sendiskrifstofur sem víðast. Litháen er á árinu 2013 með um 109 sendiskrifstofur víða um heim.
Ég vil leggja áherslu á það að sú upptalning sem hæstv. ráðherra var með í upphafi síns máls er fyllilega réttmæt og styður við það sem ég hef hugsað. Ég vona að hæstv. utanríkisráðherra verji þessa þjónustu sem er í almannaþágu. Ég hef lokið máli mínu að sinni, herra forseti.