144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[18:44]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla þá að snúa mér að næsta kafla sem er í raun þróunarmál, það er aðstoð við bágstaddar þjóðir. Ísland er þrátt fyrir allt sæmilega efnum búið og hefur ýmsa möguleika, hefur ýmislegt fram að færa. Það hefur komið fram að þróunaraðstoð okkar á náttúrlega ekki að byggjast á því að sturta niður peningum hér og þar heldur fyrst og fremst að leggja af mörkum það sem við kunnum best, það sem þjóðin kann best. Hún er vel að sér í fiskveiðum, hún er vel að sér í jarðhitamálum og hvort tveggja styður þær þjóðir sem eiga um sárt að binda til sjálfsbjargar. Við þurfum að horfa til þróunarmála á þeim grunni.

Það er rétt sem hér kemur fram að haldið er í horfinu, 0,22% af landsframleiðslu þar sem markmiðið er 0,7%, það þarf að bæta þrefalt í. Ég veit ekki hvort það hefst á þessu kjörtímabili. Við megum heldur ekki horfa á þróunaraðstoð sem einhvers konar viðskiptatækifæri fyrir okkur. Það er dýrt að vera maður og við eigum ekki að vera óbeinir þiggjendur í þróunaraðstoð eins og mér finnst oft og tíðum koma fram, sem sagt að þróunaraðstoð okkar verður okkur að tekjulind.

Ég vona að þessi ríkisstjórn standi við markmið og virði samning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi frá 1979 sem nær yfir landamæri, þ.e. að tryggja öllum menntun, heilbrigðisþjónustu (Forseti hringir.) og félagslegt öryggi yfir landamæri jafnvel líka.