fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir athugasemdir og þær spurningar sem til mín er beint.
Fyrst varðandi nemendafjöldann er rétt að hafa í huga að horft er til þess að reyna að færa fjármögnun í framhaldsskólakerfinu nær raunveruleikanum. Í mörg ár hefur það verið þannig að fjárveitingarnar sem hafa farið til þessa skólastigs hafa dregist saman ár frá ári þar til í fyrra, en nemendunum hefur verið að fjölga. Þetta hefur gert það að verkum að ef ég gríp hér inn í framlag á ársnema í framhaldsskólastiginu 2008 var það 1 millj. kr. en fór niður í 889 þús. kr. árið 2011. Þá sjá allir undir hverslags álagi skólastigið hefur verið. Á síðasta ári tókst okkur að snúa þessu aðeins við.
Skilaboðin sem við erum að senda til þeirra sem stýra skólunum eru þessi: Við viljum hækka launastikuna þannig að hún endurspegli betur raunveruleikann. Það getur þýtt það, ef menn horfa einungis á þær stærðirnar, að færri fari inn í skólann. Þá er unnið eftir þeirri reglugerð sem var gefin út í febrúar 2012 sem þáverandi menntamálaráðherra, hv. þm. Katrín Jakobsdóttir, gaf út þar sem settur er upp forgangslisti um það hvernig skuli tekið inn í skólana.
Auðvitað er það svo að einstökum skólameisturum, ef þeir kjósa að taka inn fleiri nemendur og vinna sig neðar þarna í gegn, er gert það kleift en verið er að senda þau skilaboð að það sé ekki leiðin til að fá meiri fjármuni að fjölga nemendum, það er verið að kalla sérstaklega eftir því.
Ég bendi líka á annað. Stórt kerfi er starfandi fyrir utan framhaldsskólakerfið: símenntunarstöðvarnar, raunfærnimatið og síðan frumgreinadeildirnar við háskólana sem eru mjög vel til þess fallnar að taka á móti eldri nemendum. Út frá kennslufræðilegum sjónarmiðum er líka mun skynsamlegra (Forseti hringir.) fyrir fullorðna einstaklinga að fara þá leið. Hún er bæði styttri og markvissari. Það er kannski ekki alltaf sjálfgefið að það sé mjög snjallt að setja til dæmis þrítugan einstakling á skólabekk með 16 ára og senda þá saman í lífsleikni.