fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég er með nokkrar spurningar sem mig langar að beina til hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra. Sú fyrsta varðar raunar bókaskattinn sem hann reifaði hér í síðasta svari sínu.
Nú liggur það fyrir og hefur verið gerð úttekt á því hvaða áhrif skattbreytingar hafa í löndunum í kringum okkur og má þar nefna þegar Lettar fóru þá leið að hækka virðisaukaskatt á bækur og nýútgefnum bókum fækkaði um 50% á næsta ári. Sama má segja um Svíþjóð sem síðan setti þennan skatt niður, að mig minnir 2001, og bóksala jókst um 20%. Ég vænti mjög þess að hæstv. ráðherra eigi eftir að kynna sér þetta vel því að ég mundi telja að á málsvæði með rúmlega 300 þúsund málnotendur væri það mjög viturleg ráðstöfun að reyna að setja þetta skattþrep niður í núll. Það verður ekki til að flækja skattþrepið sem menn langar að einfalda en mundi þá sýna í verki raunverulegan vilja stjórnvalda til að stuðla að auknu læsi og auknum bóklestri. Þarna þarf auðvitað líka að horfa á bækur í öðru formi en pappírsformi, þ.e. rafbækur svo ég nefni þær.
Hæstv. forsætisráðherra upplýsti þjóðina um það í síðasta áramótaávarpi sínu að unnið væri að sóknaráætlun skapandi greina í menntamálaráðuneytinu. Ég er að velta því fyrir mér, og bið hæstv. menntamálaráðherra að upplýsa mig um það, hvar þessarar sóknaráætlunar sjái stað í fjármálaráðuneytinu eða hvort vinnu sem stóð yfir hérna um áramótin sé ekki lokið og hvernig nákvæmlega við getum séð hana birtast í einstökum liðum, því að ég verð a.m.k. ekki vör við aukningu á þeim liðum sem lúta að skapandi greinum. En hæstv. ráðherra upplýsir okkur um það hér á eftir.
Ég tók eftir því að liðurinn Menntun á sviði kvikmyndagerðar heitir nú Kvikmyndaskóli Íslands og samkvæmt langtímaáætlun er búið að festa fjárframlag upp á 75 milljónir til 2018. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort þar með hafi verið tekin ákvörðun um að fara ekki eftir þeim tillögum sem komu fram í stefnumótun um menntun á sviði kvikmyndagerðar þar sem var meðal annars lagt til að taka upp háskólanám á sviði kvikmyndagerðar og hvort fremur hafi verið farin sú leið að gera langtímasamning við Kvikmyndaskóla Íslands. Ég hef ekki séð fregnir um þetta á heimasíðu ráðuneytisins en það kann að vera að þær hafi farið fram hjá mér.
Mig langar að nota síðustu hálfa mínútuna sem ég á hér. Það hefur verið boðað nýtt frumvarp um heildarendurskoðun á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og reifað er í fjárlagafrumvarpinu að staða sjóðsins sé viðkvæm. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, ég veit ekki hvort hann hefur tíma í að svara þannig að ég bið hann um að láta þá spurningu mæta afgangi, hvort við eigum von á einhverjum róttækum breytingum í þeirri heildarendurskoðun sem fyrir dyrum stendur og hvort eitthvað verði nýtt af því lagafrumvarpi sem hér var lagt fram vorið 2013 og hlaut talsverða umræðu en var ekki lokið.