fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Það er mjög áhugavert að eiga orðastað við hv. þingmann um þessi mál. Þetta er einmitt staðan, 50% starfanna eins og við þekkjum þau í dag jafnvel horfin. Þetta er hin gríðarlega áskorun sem menntakerfið stendur frammi fyrir: Hvernig menntum við börn og ungmenni til að sinna störfum sem við þekkjum ekki? Þá skiptir hæfni miklu máli, færni, og hana þurfum við að byggja upp þannig að hún verði ekki úrelt daginn sem gengið er út úr menntastofnunum. Þetta er gríðarleg áskorun fyrir menntakerfið. Sá þáttur málsins er mjög til umræðu innan menntakerfisins, þ.e. hvernig við gerum þetta.
Þá kemur næst að því sem ég veit að hv. þingmaður kallar hér eftir og er spurningin um fjármunina. Ég vil fyrst segja hvað varðar tengingar, tölvutengingar hér, aðgang að interneti, almenna tölvueign o.s.frv. að Ísland stendur ágætlega hvað það varðar. Í öllum alþjóðlegum samanburði erum við sterk hvað þetta varðar. Kannski er spurningin þessi: Hvernig innleiðum við þetta inn í skólakerfið þannig að við séum ekki að gera sömu hlutina og við erum að gera núna og nota bara tæknina, hvernig gerist það að við breytum því hvernig við kennum og gerum það á grundvelli tækninnar? Það er stór munur á því að bæta tækninni ofan á og gera hlutina áfram eins og við höfum gert þá eða fara að nýta tæknina til þess að breyta því hvernig við kennum. Það var það sem mér fannst mjög áhugavert af því sem hv. þingmaður nefndi, það hvernig við getum t.d. einstaklingsmiðað námið betur og reynt að draga þannig úr brottfalli og haldið uppi námsáhuga nemendanna með því að fylgjast vel með því hvað það er sem þeim finnst áhugavert að fást við. Síðan reynir á kennarann að tryggja það að nemandi verði ekki aðeins góður í því sem viðkomandi einstaklingi finnst skemmtilegt, að tryggja að nægjanleg hæfni og nægjanleg færni verði mynduð, m.a. í lestri og stærðfræði og öðrum slíkum kjarna- og undirstöðugreinum, (Forseti hringir.) þannig að hægt sé að nota þær síðar meir.