fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra fyrir góðar skýringar sem hann hefur gefið okkur hér í dag á málefnum sem lúta að menntun og menningu.
Mig langar aðeins til þess að koma inn á málefni tveggja háskóla, þ.e. Hólaskóla og skólans á Hvanneyri. Nú er samkvæmt frumvarpi til fjárlaga lækkun á framlagi til beggja þessara skóla.
Ég er hér sem þingmaður míns kjördæmis og teygi mig reyndar yfir í Norðvesturkjördæmi líka. Málið er að þessir skólar eru ekki einungis menntastofnanir. Þeir gegna líka hlutverki menningarsetra, þeir hafa áhrif á byggðaþróun á þessum stöðum og eru miðpunktur félagslífs og félagslegra samskipta á þessum stöðum. Þess vegna skiptir svo miklu máli að hlúa að þeim, að vinna að því að þessar stofnanir geti lifað áfram og gegnt sínu margþætta hlutverki. Ég þekki náttúrulega afskaplega vel sem skólameistari í framhaldsskóla af þessum toga hvað þessar stofnanir hafa mikið að segja fyrir samfélagið þar sem þær eru.
Annað sem mig langaði til þess að ræða aðeins við menntamálaráðherra er reiknilíkanið. Það sem ég sé þegar ég fer yfir það frumvarp sem fyrir liggur er að framlög til flestra framhaldsskóla hafa hækkað og gott ef ekki allra en einstakir skólar fá miklu minni hækkun en heildin. Það munar verulega í prósentum þegar horft er á breytingu frá fjárlögum og til frumvarpsins fyrir 2015. Meðaltalið er samtals 13,7% en fjórir skólar fara alveg niður fyrir 6% og enda jafnvel í mínustölu varðandi breytingu frá fjárlögum fyrir 2014. Þetta hlýtur að stafa af því að það hafa átt sér stað breytingar á breytum í reiknilíkani en ég er aðeins að velta fyrir mér hvað það geti verið sem ræður þessu að mestu leyti.
Síðan ætla ég að koma í seinni umferð að því sem ég vil spyrja frekar um.