144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[20:50]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Í sjálfu sér er jákvætt að hæstv. fjármálaráðherra er velviljaður bæði vegaframkvæmdunum eða samgönguframkvæmdunum og byggingu nýs Landspítala. En velviljinn einn dugar ekki til. Það þarf virkilega að reyna að finna leiðir sem sjást á pappírunum og í reynd til þess að við komumst eitthvað af stað í þessum efnum. Það er, held ég, alveg augljóst mál hvað varðar samgöngumálin og þá meina ég bæði vegamál, þess vegna hafnir, ég tala nú ekki um líka flugið, að við höfum gengið mjög nærri okkur hvað það varðar að viðhalda ekki einu sinni, hvað þá halda áfram að byggja upp, innviðina í þeim efnum.

Varðandi svo afkomuna sést það í töflum í pappírum hæstv. fjármálaráðherra sjálfs að skrefin sem við munum ná núna og á næstu tveimur árum í batnandi afkomu ríkissjóðs eru dvergsmá borið saman við þau sem við náðum á árunum 2010, 2011, 2012 og 2013 þegar við fórum úr 140 milljarða halla á þágildandi verðlagi upp í núll. Frestunin á því að ná jöfnuði í ríkisfjármálunum fólst í því einu að ferlið var mýkt með endurskoðun á ríkisfjármálaáætlun 2011 í góðu samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, mýkt þannig að í staðinn fyrir að stefna að afgangi, einhverjum teljandi afgangi, 2013 mundu menn reyna að ná upp undir núllið. Hvað gerðist? Það tókst. Var ekki ríkisreikningurinn að koma sem beinlínis sýndi okkur það?

Auðvitað eru í þessu veruleg skekkjumörk þegar glímt er við svona óvissar og erfiðar aðstæður, en í það heila tekið hefur þetta gengið upp nákvæmlega í samræmi við ríkisfjármálaáætlunina eins og hún var endurskoðuð 2011. Það er bara þannig. Það fullyrði ég. Það er ekki sanngjarnt, sem haldið er fram í litla heftinu, að eitthvað annað hafi verið uppi á teningunum.

Það sem ég er einfaldlega að segja er að mér finnst síðan skrefin núna á næstu tveimur árum, (Forseti hringir.) 2015 og 2016, vera sorglega smá. Það er að vísu teiknað upp að svo komi góður afgangur 2017 og 2018 — fínt — en hann hefði bara þurft að byrja að myndast fyrr.