144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:13]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Það er ekki hægt að ræða þetta fjárlagafrumvarp vel án þess að taka tillit til tekjuöflunarfrumvarpsins og þess vegna eru þau lögð fram samhliða í þinginu. Í smáatriðum veit ég ekki hvar er best að ná inn sköttum en í stórum dráttum ættu tekjur ríkisins að vera hlutfallslega meiri frá þeim sem meira hafa. Það er góð regla, hún er ekki ný af nálinni og faðir kapítalismans var kannski sá fyrsti sem talaði um hana og gerði hana vinsæla og hún er nákvæmlega sú að skattheimtan leggist hlutfallslega, ekki bara meira heldur hlutfallslega meira á þá sem meira hafa. Minnst ætti skattheimtan að vera á nauðsynjavörur eins og mat.

Við píratar munum því leggja fram breytingartillögu við frumvarp til fjárlaga um að matvæli verði undanskilin virðisaukaskatti, að það verði 0% virðisaukaskattur á matvæli. Ég hef beðið nefndasvið um að undirbúa þessa breytingartillögu, því að okkur finnst sjálfsagt að afnema skatta á lífsnauðsynjar ef hægt er að ná skattinum inn annars staðar og að sjálfsögðu er hægt að ná honum inn annars staðar. Upplýsingasviðið sendi fyrir mig fyrirspurn til fjármálaráðuneytisins um það hvað matur er mikill hluti af neðra skattþrepinu, þ.e. þeir 11 milljarðar sem fást fyrir hækkun neðra þrepsins eru ekki allt matvæli, hve mikið af þeim eru matvæli? (Gripið fram í: 7,5.) 7,5 heyrist í salnum, eitthvað svoleiðis, (Fjmrh: 62%.)62% segir hæstv. fjármálaráðherra, það er eitthvað um það. Væri þá kannski hægt að minnka frekar bilið milli efra og neðra skattþrepsins með því að hækka skatt á þær vörur sem eru ekki nauðsynjar aðeins meira og taka algerlega af virðisaukaskatt á lífsnauðsynjar eins og matvöru? Það væri hægt, þá væri enn þá minna bil. Það er eitthvað sem virðist ríkisstjórninni hugleikið, að minnka þetta bil. Það var 18% fyrir þessar breytingar sem eru lagðar til, er 18% í dag. En þetta er breytingartillaga sem við munum leggja fram.

Nú veit ég heldur ekki í smáatriðum hvernig er best að nýta skattfé en ég trúi því að landsmenn vilji setja heilbrigðiskerfið í forgang, að setja það í forgang að við borgum háa skatta á þessu landi, að setja það í forgang að þegar maður verður veikur, þegar barnið manns verður veikt þurfi maður ekki að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á þær áhyggjur sem maður hefur vegna veikindanna. Það sem ég mun gera í þessu er að nota fé þingflokksins, það fé sem ég hef þar til umráða til að kalla eftir skoðanakönnun um það hvernig landsmenn vilja forgangsraða skattfénu sem þeir eiga klárlega að hafa eitthvað um að segja, ekki aðeins í formi þess að kjósa flokka með stefnur í alls konar málum heldur hafa beinni aðkomu að því. Við getum fengið einhverja hugmynd um það með góðri skoðanakönnun. Ég mun sjá til þess að það verði fjármagnað af þingflokki Pírata, af mínum hluta þar.

Þetta er tvennt, annars vegar frumvarp um að sá hluti virðisaukaskattshækkunar í neðra þrepinu sem lýtur að matvælum skuli felldur út og hins vegar að við glöggvum okkur betur á því hvernig almenningur vill virkilega að fjármunum hans sé forgangsraðað. Ég vil athuga hvort hæstv. ráðherra getur sagt okkur hvað honum finnst um þá hugmynd um að matur verði undanskilinn virðisaukaskatti og þá hugmynd að hækka þá neðra skattþrepið örlítið meira, sem því nemur, eða hvort hann hefur einhverjar aðrar hugmyndir um skattheimtu sem er réttlætanlegri og þannig að hún leggist ekki á lífsnauðsynjar, hvort það væri hægt að taka slíkan skatt inn einhvers staðar annars staðar, hvort hann sjái það fyrir sér.