144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að eiga orðastað við hv. formann fjárlaganefndar, Vigdísi Hauksdóttur, vegna fjárlagavinnunnar. Ég verð að lýsa ákveðnum áhyggjum af áreiðanleika þeirrar vinnu og þá ekki síður þeirra upplýsinga sem koma fram eða öllu heldur koma ekki fram í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi sem þingmenn hafa nú til umfjöllunar.

Fræg er nú þegar orðin bls. 207 þar sem ruglað var með prósentutölur virðisaukaskattsins og ég skal ekki fjölyrða um það frekar, það hefur verið rætt hér. En nú taka menn eftir því þegar frumvarpið er lagt fram að sóknaráætlanir landshlutanna, það veigamikla verkefni sem hefur staðið árum saman til að breyta vörn í sókn fyrir viðkvæm byggðarlög í landinu, það mikla og góða verkefni hefur misst allar fjárveitingar ef undan eru skildar litlar 15 millj. kr.

Til viðbótar við að 400 millj. kr. fjárveiting var tekin af í fyrra og einungis fjórðungur fjármagns settur inn aftur þá sem sagt hvarf allt núna nema 15 millj. kr. Atvinnuvegaráðherra upplýsti síðan í umræðunni að þarna hefðu orðið mistök sem yrðu leiðrétt. Það hefðu átt að renna til sóknaráætlananna 100 millj. kr. eins og á síðustu fjárlögum en það hefði gleymst í forsætisráðuneytinu að setja þetta inn. Sem sagt 85 millj. kr. sem áttu að vera inni gleymdust.

Nú hefur ríkisstjórnin verið að rugla mikið með verkaskiptinguna og það kann að skýra þessi mistök en maður veltir því fyrir sér hvað sé þá eiginlega að marka þetta fjárlagafrumvarp, hvort þetta sé einhver hrákasmíð sem þingmönnum sé síðan ætlað að leiðrétta og laga í meðförum þingsins eftir á. Ég vil spyrja hv. formann fjárlaganefndar hver hennar viðbrögð séu við þessum og öðrum eins vinnubrögðum.