144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[14:37]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í þessu andsvari mínu vil ég gera það að umtalsefni sem hæstv. fjármálaráðherra sagði um áhrif á lækkun virðisaukaskattsþreps á byggingarkostnað. Hann var með dæmi um byggingarkostnað vegna raðhúss upp á 42 milljónir o.s.frv. og sagði að hann lækkaði um 1%.

Virðulegi forseti. Hvergi í gögnunum er getið um það að núverandi hæstv. ríkisstjórn ætli að afnema átakið Allir vinna, þ.e. 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti við vinnu á byggingarstað. Tökum sem dæmi að vinnulaun í þessu umrædda húsi væru 20 milljónir, þá fengjust 4 milljónir endurgreiddar. Með breytingartillögum hæstv. ríkisstjórnar verður þetta lækkað niður í 60%. 40% hverfa af.

Virðulegi forseti. Þarna er umtalsverð upphæð sem notuð er í dag en hverfur um næstu áramót. Hvers vegna ræðir hæstv. fjármálaráðherra ekki um þennan þátt sem dettur þá út og mun hafa (Forseti hringir.) í för með sér hækkun eða minna endurgreitt til fólks?