144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[14:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt ábending hjá hv. þingmanni að við verðum áfram í ákveðnum vanda með að hafa hrein mörk milli tegundar þjónustu sem er innan eða utan kerfisins. Það sem við ákváðum að gera núna eftir þá vinnu sem átt hefur sér stað á þessu ári er að taka inn fólksflutninga í afþreyingarskyni. Það var til skoðunar að taka inn alla fólksflutninga. Meðal þess sem ég hafði miklar áhyggjur af í því sambandi voru áhrifin á flugmiðann í innanlandsflugi. Flug innan lands hefur átt undir högg að sækja. Þegar við erum hins vegar farin að ræða um aðila eins og Bláa lónið erum við klárlega utan fólksflutninga og þá erum við farin að skoða út frá aðeins víðara sjónarhorni. En allir þessir þættir, almenningssamgöngurnar og aðrir undanskildir aðilar sem eru til dæmis innan ferðaþjónustunnar, verða áfram til (Forseti hringir.) skoðunar í þeirri vinnu sem eftir er að klára.

Ég ætla bara að segja um gildistökuákvæðin að þau eru (Forseti hringir.) klárlega mjög viðkvæm.