144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[17:42]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hér spannst nokkur umræða áðan um fjarveru Framsóknarflokksins frá þessari umræðu. Það er náttúrlega þannig að það er yfirlýst að þingflokkur Framsóknarflokksins hafi sett fyrirvara við þetta mál. Sú er nú venja að hér við umræður um þingmál fylgi þingmenn fyrirvörum sínum við mál úr hlaði við umræðuna í heyranda hljóði. Ég vil árétta þau sjónarmið sem hér komu fram áðan að hingað komi fulltrúi Framsóknarflokksins og lýsi þeim fyrirvörum sem við málið eru efnislega.

Ég vil líka árétta að við 1. umr. fjárlaga beindi ég spurningum til formanns fjárlaganefndar og hún, eins og framsóknarmönnum er títt þessa dagana, neitaði að svara þeim, (Gripið fram í.) en sagði hins vegar að þegar tekjuöflunarfrumvörpin kæmu til umræðu hér í dag mundi hún fúslega svara þeim spurningum sem ég beindi til hennar þá. Ég treysti því að það loforð sem formaður fjárlaganefndar gaf hér á fimmtudaginn verði efnt og hún komi á mælendaskrá og svari þeim spurningum undir þessari umræðu í dag eins og hún lofaði á fimmtudaginn var.