virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Þegar maður er aftarlega í röðinni er næstum því búið að segja allt sem manni (Forseti hringir.) liggur á hjarta.
(Forseti (EKG): Forseti vill biðja um hljóð í hliðarsal.)
Ég vil aðeins ræða matarskattinn. Mér finnst alls ekki sjálfsagt að fara út í þessar hækkanir á virðisaukaskatti á matvæli, sérstaklega ekki þegar við sjáum ekki hvert lokamarkmiðið á að vera og það koma í rauninni ekki til neinar mótvægisaðgerðir sem heitið geta.
Nú var virðisaukaskattur á mat lækkaður árið 2007, ef ég man rétt, það var tekin ákvörðun um það 2006, og það voru einhver rök fyrir því að menn ákváðu að fara í þá aðgerð, gott ef það voru ekki sömu flokkar og stjórn nú sem tóku þá ákvörðun. Hún var meðal annars tekin vegna þess að matvælaverð á Íslandi er hátt og mun eflaust alltaf vera frekar hátt. Það er einfaldlega vegna þess að lega landsins er þannig að við erum fjarri mörkuðum, við erum fámenn, landið er dreifbýlt og svo erum við líka með nokkuð harða tollastefnu, verndarstefnu, hvað varðar innflutt matvæli.
Síðan eru aðrir þættir, eins og stærð verslunarrýmis sem hefur mikið verið talað um. Við erum með gríðarlega mikið af verslunarrými og það fer út í verðlagið. Einnig eru opnunartímar langir, en í raun eru þetta þættir sem samkeppnin ætti að sjá um. Mér finnst mörg rök hníga að því að virðisaukaskattur á matvæli eigi að vera lágur. Það er mikið talað um að 7% eða lágur virðisaukaskattur á matvæli sé ekki góð tekjujöfnunaraðgerð. Ég skil ekki alveg þá umræðu, verð ég að segja, vegna þess að það eru til hundrað leiðir til að tekjujafna. Það að hækka mat, sem bitnar ekki síst á þeim sem hafa minnst á milli handanna, ég held að því fólki standi alveg á sama um hvort einhverjir sem hafa meira á milli handanna græði á því. Fólk sem er tekjulágt þarf að kaupa mat. Það skiptir einungis máli fyrir það að matvæli séu ódýr. Það má fara í aðrar aðgerðir ef menn vilja tekjujafna og ná sköttum af þeim sem eru tekjuhærri en þá mundi ég vilja að beitt væri öðrum aðgerðum en þessari.
Svo hefur líka verið talað um að það sé svipað hlutfall ráðstöfunartekna sem fer í mat hjá tekjulágum og tekjuháum, þótt fari tvennum sögum af því. Það segir heldur ekki alla söguna vegna þess að það er munur á því hvað fólk kaupir. Sumir hafa lítið á milli handanna, maður þekkir það sjálfur frá því að maður var í námi með börn og nýr á vinnumarkaði með lág laun, að þá var matarkarfan allt öðruvísi en hún er hjá mér í dag, það er bara þannig. Mér finnst að það þurfi að rannsaka aðeins hvað tekjulágir kaupa og hvað tekjuháir kaupa ef við ætlum að nota þau rök.
Mig langar líka að vekja athygli á því sem hefur komið fram hérna, þ.e. hvort þessi lækkun, sérstaklega á efra þrepinu, muni skila sér. Auðvitað vonar maður að það verði tilfellið og seljendur geri það, en þessar áhyggjur eru réttmætar. Það er til mjög góð skýrsla sem var gerð eftir lækkunina 2007, ég er með hana hérna einhvers staðar. Það er eiginlega greining á því hvort virðisaukaskattslækkunin hefði skilað sér, þetta var mikil lækkun á mat, sérstaklega hvað varðar veitingahúsin. Það var farið í mikið átak. ASÍ sá um ákveðinn hluta og fékk til þess styrk og Neytendastofa sá um ákveðinn hluta og Neytendasamtökin líka. Ríkið veitti einnig fjárstyrk, þannig að það voru allir á vaktinni. Þetta skilaði sér að einhverju leyti en þó ekki eins og menn höfðu ætlað. Þetta er alltaf erfitt vegna þess, eins og við vitum, að verðlag er frjálst og samkeppnin á að sjá til þess að verðlækkanir skili sér, en það geta verið markaðir þar sem þetta er erfitt.
Það var farið í aðgerðir hér, það tók gildi að mig minnir 1. júní. Þá var verð á tóbaki og áfengi lækkað. Það var að vísu mjög lítil lækkun en ég veit ekki til þess að sú lækkun hafi skilað sér í verði, a.m.k. gerðu Neytendasamtökin rannsókn á því varðandi tóbakið og það hafði ekki skilað sér eins og til var ætlast. Það er því ástæða til að vekja athygli á því að ef af þessu verður verðum við að tryggja eftirlit, vitundarvakningu og allt sem við getum til að tryggja að seljendur skili þessu til neytenda.
Varðandi vörugjöldin er rétt að taka fram að við í Bjartri framtíð fögnum því að afnema eigi vörugjöldin. Ég vil helst ekki fá andsvör sem snúa að því hvort ég viti ekki að fólk þurfi að kaupa sjónvarp og ísskápa, ég geri mér fullkomlega grein fyrir því. Við erum fylgjandi því. Þetta með sykurskattinn er kannski svolítið flókið. Þegar skatturinn var settur á á sínum tíma var ég frekar neikvæð gagnvart honum vegna þess að mér fannst alveg ljóst að þetta var ekki lýðheilsuaðgerð. Þetta var aðeins aukinn skattur. Þetta var of lítil hækkun til þess að hafa einhver áhrif á lýðheilsu. Ekki nóg með það, skatturinn er líka á vörum með sætuefni. Maður hefði haldið að það ætti ekki skattleggja vörur með sætuefni ef fólk er að reyna að forðast sykur.
Hins vegar skilar þessi sykurskattur auðvitað tekjum í ríkissjóð. Mér mundi finnast það einkennileg aðgerð, ef það verður raunverulega farið í að hækka virðisaukaskatt upp í 12% á matvælum, að afnema á sama tíma sykurskattinn. Það fyndist mér einkennilegt. En ef við ákveðum að hækka ekki virðisaukaskattinn á matvæli og jafnframt að afnema sykurskattinn væri ég fylgjandi því. Ég mundi þó kalla eftir raunverulegum lýðheilsuaðgerðum vegna þess að sykur er ekki eina vandamálið. Það er salt líka og mér finnst raunverulega vanta markvissar aðgerðir í lýðheilsumálum. Ég geri fyrst og fremst kröfu um að merkingar á matvælum séu þannig að fólk skilji þær. Það er svoleiðis í dag að merkingar eru ekki þannig, gott ef hæstv. fjármálaráðherra sagði ekki í ræðu að sykurinn leyndist víða. Það er nákvæmlega þannig. Sykurinn leynist víða. Hvernig á sykur að leynast í matvælum? Hvernig getur það verið tilfellið? Eiga neytendur ekki að vera með það alveg á hreinu hvað er í matvælum og skilja það?
Í því sambandi hef ég og fjölmargir aðrir þingmenn úr öllum flokkum lagt fram þingsályktunartillögu sem gengur út á betri merkingar á matvælum. Það finnst mér vera augljóst fyrsta skref áður en við förum í skattlagningu. Það er mín afstaða. Það eru ótal leiðir sem hægt er að fara en ég hef saknað þess, bæði fyrr og nú, að sjá hvað stjórnvöld ætla sér í lýðheilsumálum. Það þýðir ekkert að skrifa fleiri greinar, það þarf að gera eitthvað markvisst. Mér skilst að búið sé að skipa ráðherranefnd um lýðheilsuna. Ég bíð spennt eftir að heyra hvað lagt verður til.
Annað í sambandi vörugjöldin sem mér finnst styðja það að afnema þau og líka að lækka efra þrepið í skattinum er að það er alveg rétt sem hefur komið fram, fólk fer til útlanda og verslar. Það er farið í innkaupaferðir. Mér finnst að það væri alveg til þess vinnandi að gera það sem við getum til að styðja við verslun á Íslandi, að skattleggja hana ekki það mikið að það verði beinlínis hvati að því að fara í verslunarferðir.
Ég fagna því líka að við séum að færa neðra þrepið niður í 24%. Það má kannski segja að þegar það var hækkað hafi menn verið að bregðast við vanda í þjóðfélaginu, það þurfti skatttekjur, en á einhverjum tímapunkti verðum við líka að skila því aftur, að lækka skattinn og auka ráðstöfunartekjur.
Að endingu vil ég ítreka það sem formaður Bjartrar framtíðar gerði í ræðu sinni, að við mundum gjarnan vilja sjá lokamarkmiðið hérna. Ég skil ekki alveg hvort það er þannig að við ætlum að gera þetta í nokkrum skrefum, að á hverju ári verði smá breytingar þangað til við erum komin með eitt þrep. Er gott að vera með breytingar á hverju ári? Flækir það ekki kerfið, bókhaldið og allt? Kannski er pólitíkin á Íslandi þannig að það er ekki hægt en ég vil leyfa mér að trúa því að við getum farið í svona breytingar í breiðri sátt og samvinnu þar sem við endum með einhverja útkomu og segjum: Svona höfum við þetta næstu 20 árin. Svo að það sé ekki alltaf þannig þegar ný ríkisstjórn kemur að hún geri eitthvað annað og við gerum þetta sífellt í andstöðu hvert við annað. Það þýðir ekki endilega að allir verði himinlifandi en að þetta séu breytingar sem við getum öll sæst á. Mér finnst það til þess vinnandi.
Þess vegna vil ég taka undir það sem formaður Bjartrar framtíðar lagði til, að við förum hægar í þessar breytingar og vöndum okkur, en ég árétta að við erum opin fyrir því að skoða hvort eitt þrep sem endanlegt markmið sé sniðugt. Enn veit ég ekki hvort þrepið á að vera 12% eða 22%, þetta eina þrep, og þess vegna finnst mér svolítið erfitt að styðja þetta mál. Svo finnst mér það prinsipp að matarskatturinn sé lágur, matur er nauðsynjavara.