144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[21:30]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Til hvers eru skattar? Eru þeir ekki til þess að afla tekna til sameiginlegra þarfa samfélagsins, þeirra sem við höfum komið okkur saman um að leysa sameiginlega? Til dæmis eins og að sjá fyrir góðu mennta- og heilbrigðiskerfi og það sé fjármagnað með sameiginlegum tekjustofnum samfélagsins og standi svo fólki til boða, helst endurgjaldslaust eða með litlum kostnaði, og þannig jafnist lífskjörin líka í gegnum útgjaldahliðina. Það er nefnilega kannski stærri hluti af lífskjarajöfnuninni í norrænu velferðarsamfélagi, sú þjónusta sem við njótum í gegnum skattana okkar.

Nú eru skatthlutföll á Íslandi lægri en annars staðar á Norðurlöndunum, það er staðreynd, mun lægri en í Svíþjóð, Danmörku og Noregi og nokkuð lægri en í Finnlandi. Samt viljum við, a.m.k. mörg, kannski ekki hv. þingmaður, tilheyra svona norrænni samfélagsgerð. Ég held að það sé ekki mikil deila um það á Íslandi að við teljum okkur eiga best heima þar, í hinu norræna velferðarsamfélagsmódeli. Þá er (Forseti hringir.) niðurstaðan ósköp einföld og hefur alltaf blasað við: Við rekum ekki norrænt velferðarsamfélag með amerískum skatthlutföllum. (Forseti hringir.) En það er það sem Sjálfstæðisflokkurinn virðist halda að sé hægt.