144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[23:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi kynnt sér tölur um raunverulega hækkun matarverðs eins og gert er ráð fyrir að hún verði samkvæmt því sem segir í frumvarpinu, samkvæmt því sem Viðskiptaráð hefur áætlað, samkvæmt því sem Rannsóknasetur verslunarinnar á Bifröst hefur áætlað síðast í dag. Rannsóknasetrið áætlar að hækkun matvælaverðs losi um 2% en Viðskiptaráð gerir ráð fyrir 1,6% hækkun. Við í fjármálaráðuneytinu höfum viljað fara varlega og sagt að þetta gæti verið í kringum 2,5%. Það er í öllu falli ekki nema helmingurinn af því sem hv. þingmaður talar um. Síðan veit hann auðvitað af hinu, hann sleppir því með öllu að tala um allt annað sem lækkar, lyf, föt, skór, húsbúnaður, eldsneyti og allt annað sem er í efra þrepinu og kemur niður um 1,5 prósentustig og vegur hlutfallslega þyngra, þ.e. efra þrepið í vísitölu neysluverðs, en allt það sem er í neðra þrepinu. Um það bil helmingi meira af því sem fellur í efra þrepið skiptir máli í vísitölu neysluverðs.

Þess vegna spyr maður sig, þegar við ræðum um mikilvægi þess að skoða heildaráhrif breytinganna, hvort þingmaðurinn hafi virkilega svona mikla vantrú á þeim útreikningum sem hafa verið lagðir fram um að málið í heild sinni feli í sér skattalækkun upp á um 3 milljarða. Trúir þingmaðurinn því ekki í fyrsta lagi að verðlag lækki? Trúir hann því ekki að kaupmáttur aukist? Ef hann trúir því ekki finnst mér full ástæða til að fara vandlega yfir þessa þætti í þinglegu vinnunni (Forseti hringir.) og það gefst gott tækifæri til að ræða það í þaula.