144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[23:14]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég bið hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktsson um að hringja í mig þegar hann hefur keypt í matinn í einn mánuð fyrir 40 þús. kr. Það væri gaman að sjá hvað hann hefur keypt í matinn þann mánuðinn þegar hann getur haft matarreikninginn (Gripið fram í.) bara 40 þús. kr.

Það truflar greinilega hæstv. fjármálaráðherra að vera minntur á að það eru færi til þess í ríkissjóði núna að leggja niður vörugjöldin og bæta hag heimilanna. Það eru líka færi til að lækka efra þrepið í virðisaukaskatti sem fór óþarflega hátt þegar verst stóð á í ríkisrekstrinum. Þá þurfa menn bara að halda áfram veiðigjöldunum og halda áfram auðlegðarskattinum og geta algerlega sleppt því að hækka lífsnauðsynjar á almenning í landinu um 5%. Það eru 10 milljarðar og 100 þús. heimili í landinu sem deila með sér 10 milljarða skattahækkun fjármálaráðherra borga 100 þús. kr. hvert fyrir það.