144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[23:19]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir svar hans. Við erum þá búin að fá það fram skýrt og skorinort að við erum sammála um að það sé öllum til hagsbóta að afnema þau vörugjöld sem talin hafa verið almenn vörugjöld og það sé jákvætt skref í þessu frumvarpi. Það er ágætt að fá það fram.

Okkur greinir á um það hvernig fara beri með þrepin hér. Ég trúi því að það sé mjög til einföldunar að lækka efra þrep og hækka neðra þrep og minnka bilið á milli skattþrepanna, efra þreps og neðra. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála því að það sé til bóta að lækka bilið á milli þessara þrepa.