144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[23:25]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Það þarf að líta á þetta frumvarp allt í einni heild. Það þýðir ekki að taka einn þátt út úr, bara matarskattinn, og ræða hann hér endalaust vegna þess að það er líka verið að fella niður öll vörugjöld. Þó að hv. þingmaður geri lítið úr því og láti eins og fólk þurfi ekki eldavél eða ísskáp er það engu að síður nánast staðreynd að heimilin eru með þessi tæki, hafa einhvern tíma keypt þau, og þau munu lækka um 20%. Þetta er því mjög jákvætt frumvarp og virkilega ánægjulegt að við skulum ræða það hér í dag. Ég hvet hv. þingmann til að taka gleði sína og vera bara kátur.

Varðandi það að þetta frumvarp komi illa við lágtekjufólk þá vil ég bara að það sé skoðað, hvort það sé virkilega rétt. Allir tekjuhópar, ef þeim er skipt í fjóra fjórðunga, eyða 15% í mat, allir hóparnir, óháð öðru.