144. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2014.

störf þingsins.

[15:02]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Herra forseti. Í gær felldi Skipulagsstofnun úrskurð þar sem eina ferðina enn er hafnað vegalagningu um Teigsskóg. Vegagerðin ætlar að áfrýja þeim úrskurði og hringavitleysan um vegagerð í Gufudalssveit virðist ætla að halda áfram.

Ég hef alltaf verið fylgjandi vegi um Teigsskóg en ég geri mér jafnframt grein fyrir því að sú leið er sú torveldasta gagnvart lögum eins og málum er háttað og eins og hefur nú sannast eina ferðina enn. Til eru aðrar löglegar og raunhæfar leiðir sem uppfylla allar kröfur íbúa um öruggan láglendisveg, t.d. A-leiðin og I-leiðin sem báðar gera ráð fyrir þverun Þorskafjarðar og góðum láglendisvegi inn eða út Þorskafjörð, hvor tveggja leiðir sem eru fullásættanlegar og að ýmsu leyti jafnvel betri.

Önnur lögleg leið í þessu væri að óska eftir endurupptöku málsins samkvæmt leiðbeiningum sem Skipulagsstofnun sjálf hefur gefið í úrskurði sínum en nú þegar liggja fyrir yfirlýsingar um að málinu verði frekar áfrýjað og lagaþrætunum haldið áfram.

Á meðan bíða Vestfirðingar eftir sínum samgöngubótum og eru dregnir á asnaeyrunum, liggur mér við að segja, því að á meðan málið er fast í lagaþrætum leysist það ekki.

Hv. þm. Einar Kristinn Guðfinnsson hefur lýst því yfir að hann vilji, þrátt fyrir ítrekaða úrskurði að lögum, knýja fram vegagerð um Teigsskóg með því að setja sérstök lög um þessa tilteknu vegagerð en þingmaðurinn hefur engar tillögur borið fram sem stjórnarþingmaður í þá veru.

Ég vil geta þess að hugmyndin um lög af þessu tilefni felur reyndar í sér lagasniðgöngu af því tagi sem var harðlega gagnrýnd af rannsóknarnefnd þingsins hér um árið. Ég vil því spyrja þingmanninn hvort hann telji ekki koma til greina og vænlegra að fara aðrar og átakaminni leiðir til að leysa málið, t.d. leiðir A eða I, eða að óska eftir endurupptöku því að það getur varla verið sérstakt keppikefli að knýja fram niðurstöðu í þessu máli í átakafarvegi.